
Ríkisstjórnin hyggst leggja fram 159 þingmál á komandi þingvetri og boðar meðal annars breytingar á barnaverndarlögum, hertar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi, takmarkanir á hækkunum húsaleigu og ný gjöld á ferðamenn. Formenn ríkisstjórnarflokkanna kynntu helstu áherslur vetrarins á blaðamannafundi í dag.
Af málunum 159 eru 133 lagafrumvörp, 17 þingsályktunartillögur og 9 skýrslur ráðherra. Alls verða 23 þingmál endurflutt en 27 mál tengjast innleiðingu vegna EES-samningsins. EES-málunum fjölgar um 50% frá þingmálaskrá síðasta löggjafarþings.
Breytingar á verðtryggingu og húsaleigu
Ríkisstjórnin ætlar að halda áfram þríhliða samtali við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins. Meðal fyrirhugaðra þingmála er frumvarp sem á að draga úr vægi verðtryggingar og annað um lögfestingu viðurlaga vegna brota á lágmarkskjörum launafólks.
Breytingar eru einnig boðaðar á húsaleigumarkaði. Samkvæmt fyrirhuguðu frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra verður aðeins heimilt að hækka húsaleigu samkvæmt vísitölu einu sinni á ári. Ríkisstjórnin segir markmiðið að auka fyrirsjáanleika og húsnæðisöryggi leigjenda.
Ný gjaldtaka á ferðamenn
Atvinnuvegaráðherra hyggst leggja fram frumvarp um eignarhald í sjávarútvegi strax í haust. Þá verður lagt fram frumvarp um nýtt náttúru- og innviðagjald.
Gjaldinu er ætlað að láta ferðamenn sem heimsækja náttúruperlur Íslands taka þátt í kostnaði vegna verndar þeirra og uppbyggingar innviða.
Utanríkisráðherra hyggst jafnframt leggja fram svokallaða Bókun 35 vegna EES-samningsins. Ríkisstjórnin segir markmiðið að tryggja fulla virkni samningsins fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Herða aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi
Öryggismál verða fyrirferðarmikil á þinginu. Dómsmálaráðherra ætlar að leggja fram frumvarp um verulega hertar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi.
Einnig verða lögð fram ný heildarlög um almannavarnir og ný öryggislög.
Mestu breytingar á barnaverndarlögum í 20 ár
Eitt fyrsta mál haustþingsins verður ný heildarlöggjöf um barnavernd. Ríkisstjórnin segir þar um að ræða mestu breytingar á barnaverndarlögum í 20 ár.
Mennta- og barnamálaráðherra hyggst einnig leggja fram fyrstu heildstæðu aðgerðaáætlun Íslands gegn fátækt barna og fyrstu heildstæðu ungmennastefnuna.
Þá er boðuð ný löggjöf um hærri aldursmörk barna á samfélagsmiðlum en nánari útfærsla eða fyrirhuguð aldursmörk koma ekki fram í tilkynningu ríkisstjórnarinnar.
Forsætisráðherra ætlar jafnframt að leggja fram frumvarp um almennar sanngirnisbætur til fólks sem sætti óforsvaranlegri meðferð sem börn á ábyrgð hins opinbera.
Bráðamatsdeild opnuð á Landspítala
Á heilbrigðissviði verður áfram unnið að fjölgun hjúkrunarrýma. Einnig stendur til að opna nýja bráðamatsdeild á Landspítala og fjölga þeim sem hafa fastan heimilislækni.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra setur hallalaus fjárlög jafnframt í öndvegi í áherslum ríkisstjórnarinnar og segir þau mikilvægustu aðgerð ríkisins til að draga úr þenslu og verðbólgu.
