
5 karlar voru í gær úrskurðaðir í 10 daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar á innflutningi fíkniefna.
Mennirnir sæta gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 9. júní. Handtökur fóru fram í Reykjavík og Hveragerði. Málið varðar töluvert magn af sterkum fíkniefnum samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Mörg embætti komu að málinu
Fram kemur að rannsóknin hafi verið unnin í samstarfi nokkurra lögregluembætta ásamt Tollgæslunni.
Lögregla segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina að svo stöddu.
