
Um 50 manns voru handteknir í umfangsmikilli alþjóðlegri lögregluaðgerð gegn skipulagðri brotastarfsemi á Eystrasaltssvæðinu í síðustu viku. Verðmæti upp á um 70 milljónir króna voru haldlagðar í aðgerðinni. Aðgerðin, sem bar heitið EMPACT Trident, var samhæfð af evrópskum lögregluyfirvöldum og beindist meðal annars að smygli ólöglegra efna yfir landamæri, flutningi fjármuna og annarra verðmæta auk hættulegs úrgangs.
Í aðgerðinni voru yfir 33 þúsund einstaklingar og 22 þúsund ökutæki stöðvuð og skoðuð. Þá var lagt hald á mikið magn fíkniefna og stolinna muna auk þess sem mál tengd peningaþvætti komu upp.
Íslenska lögreglan tók þátt í aðgerðunum
Svíar stýrðu aðgerðinni en auk þeirra tóku Danmörk, Finnland, Eistland, Lettland, Litháen, Þýskaland, Noregur og Ísland þátt ásamt Europol og fjölda annarra stofnana.
Fram kemur að fulltrúi Íslands í aðgerðinni hafi komið frá lögreglunni á Austurlandi sem sinnir meðal annars eftirliti með komu farþegaferjunnar Norrænu til Seyðisfjarðar.
Segja samstarfið skipta sköpum
Þátttakendur í aðgerðinni segja niðurstöðuna sýna mikilvægi alþjóðlegs samstarfs í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi.
Þá er bent á að sameiginlegt átak ríkja og aukið landamæraeftirlit geti dregið úr möguleikum brotamanna til að hagnast á ólöglegri starfsemi og njóta ágóða af henni.
