72 mál skráð í LÖKE og þjófnaður úr verslunum í ákveðnum hverfum

Það var talsverður erill hjá lögreglu á dagvaktinni en fram kemur í tilkynningu að alls hafi 72 mál verið skráð í LÖKE málagagnagrunn lögreglu. Þá var talsvert um innbrot í ákveðnum hverfum.

Málin skiptust svona á milli lögreglustöðvanna á höfuðborgarsvæðinu:

Lögreglustöð 1. Miðborg Reykjavíkur

Tilkynnt um innbrot í hverfi 107, gluggi spenntur upp og farið inn, lítur út fyrir að engu hafi verið stolið

Tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 101, afgreitt á vettvangi

Tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 108, afgreitt á vettvangi

Lögreglustöð 2 , Hafnarfjörður

Tilkynnt um eignarspjöll á þremur bifreiðum í hverfi 221, ekki vitað hver gerandi er

Ökumaður stöðvaður í hverfi 221 grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, laus að lokinni blóðsýnatöku

Einn handtekinn í hverfi 221 vegna gruns um vörslu og sölu fíkniefna, laus að lokinni blóðsýnatöku

Ökumaður stöðvaður í hverfi 210 grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, laus að lokinni blóðsýnatöku

Lögreglustöð 1 ,Kópavogur

Tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 201, afgreitt á vettvangi

Tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 201, afgreitt á vettvangi

Einn handtekinn í hverfi 200 vegna gruns um vörslu fíkniefna, vistaður í fangageymslu

Lögreglustöð 4 , Árbær

Skráningarnúmer tekin af bifreið í hverfi 110 vegna vanrækslu á aðalskoðun

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila