8 tonn af vítissóda í Hvalfjörð eftir að 19.000 tonna Running Tide-tilraun var stöðvuð

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Björn Þorra Viktorsson, hæstaréttarlögmann, í Fréttum vikunnar, um fyrirhugaða tilraun Rastar sjávarrannsóknarseturs, í Hvalfirði þar sem nota á 8 tonn af vítissóda til að kanna hvort hægt sé að auka upptöku sjávar á koltvísýringi. Þau ræddu einnig fyrra Running Tide-verkefni, sömu aðila, á svæðinu, tengsl aðila sem komu að leyfisveitingum og styrkjum. Hvaða afleiðingar það gæti haft ef vítissódi yrði síðar notaður í mun stærra mæli við strendur landsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Sterkur basi settur í Hvalfjörð

Arnþrúður vakti athygli á því að vítissódi væri mjög sterkur basi sem gæti valdið alvarlegum efnabruna í þéttri lausn. Hún spurði hvers vegna íslenska ríkið teldi rétt að heimila tilraun með 8 tonn af efninu í íslenskum firði og hvaða rannsóknargögn lægju að baki.
Tilgangurinn virtist vera að kanna hvort hægt væri að auka upptöku sjávar á koltvísýringi úr andrúmsloftinu með því að gera sjóinn basískari.

Björn Þorri býr í Hvalfjarðarsveit og hefur fylgst með verkefnum á svæðinu. Hann dró sérstaklega fram fyrra Running Tide-verkefnið og spurði hvort ekki væri ástæða til að læra af því áður en ráðist væri í nýja tilraun í firðinum.

19.000 tonn fóru áður í sjó – Eiturefni komu í ljós

Running Tide rak rannsóknarverkefni frá Grundartanga sem snerist einnig um bindingu kolefnis. Björn Þorri lýsti því að sementsblandað trjákurl hefði verið flutt til Íslands frá Kanada, sett í sjó og látið fljóta þar áður en það átti að sökkva til botns og binda kolefni.

Hann sagði 19.000 tonn hafa farið í sjó áður en frekari rannsóknir leiddu til þess að verkefninu var snarhætt. Eiturefni hefðu komið í ljós í kurlinu og notkun þess með þessum hætti í íslenskri lögsögu verið stöðvuð.

Björn Þorri spurði jafnframt hvers vegna efnið hefði yfirleitt verið flutt yfir Atlantshafið til Íslands í stað þess að gera tilraunina í Kanada þaðan sem hann mundi að kurlið hefði komið.

Oddviti sveitarfélagsins stjórnarmaður í Röst

Umræðan snerist einnig að tengslum þeirra sem komu að verkefninu og leyfisveitingum vegna þess.

Björn Þorri rifjaði upp að mikil umræða hefði orðið þegar sveitarfélagið heimilaði verkefnið áður. Þá hefði komið í ljós að oddviti sveitarfélagsins væri jafnframt stjórnarmaður í Röst. Þarna væru mikilir hagsmunir í húfi.

Arnþrúður benti á að þá væri komin upp sú staða að aðili tengdur Röst sæti þannig í forsvari fyrir sveitarfélagið sem heimilaði verkefnið.

Björn Þorri vakti einnig athygli á því að hann hefði heyrt að Röst hefði styrkt hafrannsóknir við Ísland um 100 milljónir króna skömmu áður en Hafrannsóknastofnun veitti verkefninu jákvæða umsögn.

Arnþrúður sagði það sína skoðun að það væri eins og menn væru að kaupa sig áfram í kerfinu. Björn Þorri tók þá sérstaklega fram að það væru hennar orð en ekki hans.

Hann sagði þó sérstakt hvernig styrkir og tengsl gætu liðkað fyrir hlutum og Arnþrúður sagði nauðsynlegt að fá skýrt fram hverjir stæðu að verkefninu og hvað væri verið að gera.

Leyfin og regluverkið

Björn Þorri rifjaði upp að leyfi fyrir tilrauninni hefði verið hafnað árið 2025 vegna þess að regluverk um slíkar framkvæmdir skorti. Hann vissi ekki hvort slíkt regluverk hefði síðan verið sett.

Arnþrúður velti því fyrir sér hvaða rannsóknargögn lægju að baki leyfinu og hvar umhverfisverndarsinnar væru, þegar verið væri að gera tilraun af þessu tagi í hafinu. Þetta væri ný frétt og lítið væri almennt vitað um málið.

Björn Þorri minnti á að einnig hefði verið mikil andstaða meðal íbúa í Hvalfirði við fyrri áform. Sú andstaða hefði leitt til þess að farið var að skoða betur tengsl aðila og framkvæmd verkefnisins.

Hvað gerist ef tilraunin tekst?

Arnþrúður útskýrði að markmið tilraunarinnar virtist vera að gera sjóinn basískari svo hann gæti tekið upp meira af koltvísýring úr andrúmsloftinu.

Björn Þorri spurði hvað tæki við ef niðurstaðan yrði sú að aðferðin virkaði. Ef ætlunin væri að nota hana til kolefnisbindingar í stórum stíl þyrfti að svara hvort næsta skref yrði að setja þúsundir tonna af vítissóda í sjóinn umhverfis landið.

“Hvernig verður þá að borða fisk úr slíkum sjó”

Björn Þorri lagði áherslu á að hugsa þyrfti verkefnið alla leið. Skoða þyrfti eignarhaldið, hvaðan fjármagnið kæmi, hver tilgangurinn væri, hvernig niðurstöðurnar yrðu nýttar og hverjir hefðu fjárhagslega hagsmuni af framhaldinu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila