95% bænda á móti því að aðildarviðræður verði hafnar að nýju

Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands hefur samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta að leggjast gegn því að aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið verði hafnar að nýju. 94,55% þingfulltrúa studdu ályktun þess efnis á auka Búnaðarþingi í dag. Alls tóku 55 þingfulltrúar þátt í rafrænni og leynilegri kosningu. 52 greiddu atkvæði með ályktuninni, 1 gegn henni og 2 skiluðu auðu.

Hagsmunir landbúnaðar séu utan landbúnaðarstefnu ESB

Í ályktuninni kemur fram að Búnaðarþing telji hagsmunum íslensks landbúnaðar best borgið utan sameiginlegrar landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Af þeirri ástæðu leggst þingið gegn aðild Íslands að ESB og því að aðildarviðræður verði teknar upp að nýju.

Búnaðarþing telur að íslenskur landbúnaður þyrfti víðtækar og varanlegar undanþágur og sérlausnir frá regluverki ESB ef Ísland gengi í sambandið.

Telja hverfandi líkur á nauðsynlegum undanþágum

Í rökstuðningi er bent á að ekkert aðildarríki ESB hafi fengið undanþágu til að standa utan sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar. Ekkert ríki hafi heldur fengið svo víðtækar varanlegar undanþágur frá meginreglum hennar að þær jafngildi því að standa utan stefnunnar.

Búnaðarþing telur því hverfandi líkur á að Ísland gæti samið um svo víðtækar og varanlegar sérlausnir að íslenskur landbúnaður stæði að verulegu leyti utan þeirrar umgjarðar sem sameiginleg landbúnaðarstefna ESB setur.

Aðildarviðræður séu ferli í átt að aðild

Búnaðarþing telur ekki hægt að skilja á milli umræðu um aðild og aðildarviðræðna. Með því að hefja viðræðurnar að nýju sé verið að hefja ferli í átt að aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Þingið telur ekki forsvaranlegt að hefja slíkt ferli þegar hverfandi líkur séu á niðurstöðu sem réttlæti þá óvissu sem viðræðurnar myndu skapa fyrir íslenskan landbúnað.

Ályktunin byggir á skýrslu milliþinganefndar Bændasamtaka Íslands, Íslenskur landbúnaður og möguleg ESB-aðild, sem kom út 6. ágúst. Rúmlega 2.600 bændur eru í Bændasamtökum Íslands eða um 90% bænda í landinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila