
Í tilefni af Hinsegin dögum verður viðtal Arnþrúðar Karlsdóttur við Önnu Margréti Grétarsdóttur, sem fór í kynleiðréttingu árið 2013 endurflutt í dag, sunnudag kl.15:00. Í viðtalinu sem var frumflutt í september 2025 sagði Anna Margrét frá persónulegri reynslu sinni og þeirri löngu vegferð sem hún gekk í gegnum áður en hún tók ákvörðun um að fara í kynleiðréttingu árið 2013. Hún lagði áherslu á að slíkt ferli væri bæði tímafrekt og krefjandi, bæði andlega og félagslega en jafnframt nauðsynlegt til að ná sátt við sjálfa sig.
Einnig má hlusta á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
