Aðgerðaáætlun um matvælastefnu sett í samráðsgátt

Aðgerðaáætlun um matvælastefnu hefur verið sett í samráðsgátt stjórnvalda. Það er matvælaráðherra sem hefur forræði á málinu en matvælastefna Íslands til ársins 2040 var samþykkt á Alþingi í júní 2023. Matvælastefnu er ætlað að vera leiðbeinandi við ákvarðanatöku til að stuðla að aukinni verðmætasköpun í matvælaframleiðslu hér á landi, tryggja fæðu- og matvælaöryggi og auka velferð fólks í sátt við umhverfi og náttúru.

Fram kemur í umsögn um aðgerðaáætlunina að hér á landi séu tækifærin mörg og mikilvægt að nýta þau með samræmdum aðgerðum.

Aðgerðaáætlun matvælastefnu er samantekt úr stefnumótun sem undir hana fellur, ásamt aðgerðum sem ná til þeirra málaflokka sem eru á ábyrgð matvælaráðuneytisins.

Í aðgerðaáætluninni er horft til stefnumiða hvers kafla Matvælastefnu Íslands til ársins 2040 og dregið fram hvernig aðrar aðgerðaráætlanir matvælaráðuneytisins vinna að þeirri framtíðarsýn og áherslum sem koma fram í matvælastefnu. Aðgerðaáætlanirnar sem vitnað er í eru enn í vinnslu fyrir utan aðgerðaáætlun Land og líf sem gefin var út árið 2022. Í aðgerðaáætlun þessari eru jafnframt fimm aðgerðir sem liggja þvert á aðrar undirstefnur og vinna við þær er hafin eða ákveðið hefur verið að hefja þá vinnu.

Aðgerðaáætlunin er til næstu fimm ára og verður endurskoðuð og verður uppfærð ef þörf þykir.

Smelltu hér til þess að kynna þér málið nánar í samráðsgátt

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila