Aðgerðir yfirvalda í Covid byggðar á ótta en ekki vísindum

Aðgerðir yfirvalda í Covid voru byggðar á ótta en ekki vísindum og slík nálgun er mikið áhyggjuefni. Þetta segja Leifur Árnason flugstjóri og Logi Kjartansson lögfræðingur en þeir voru gestir Valgerðar Jónsdóttur í Menntaspjallinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Logi og Leifur bentu á að það sem væri alvarlegast sé að aðgerðir stjórnvalda hafi haft á réttindi almennings, samfélagsgerð og einstaklingsfrelsi. Logi og Leifur benda á að stjórnvöld hafi í kjölfar fyrstu viðbragða kynnt strangar aðgerðir, þar á meðal tveggja metra regluna og aðrar takmarkanir sem hafi oft verið settar fram án fullnægjandi vísindalegra staðreynda.

Stjórnvöld ýttu ítrekað undir ótta meðal almennings

Þeir segja að þessi nálgun hafi stýrt opinberri umræðu í faraldrinum og oft ítrekað ýtt undir ótta meðal almennings. Þeir nefna einnig hvernig tilraunir til að endurskilgreina hugtök eins og “faraldur” hafi haft það að markmiði að viðhalda stjórn á aðgerðum og fylgi almennings við þær.

Stjórnvaldsaðgerðir ómarkvissar og óþarfar

Í rýni þeirra á faraldurinn taka Logi og Leifur fram að bólusetningar hafi verið miðpunktur sóttvarna og kynntar sem algjör nauðsyn í baráttunni gegn COVID-19 en benda þó á að oftar en ekki hafi stjórnvaldsaðgerðir verið ómarkvissar eða óþarfar og nefna þá m.a. reglur um fjarlægðir og fyrirmæli um grímuskyldu.

Telja að dýpri greining þurfi að fara fram á áætlunum stjórnvalda

Logi og Leifur leggja áherslu á mikilvægi þess að dýpri greining fari fram á þessum ákvörðunum og að efld gagnrýni fari fram á áætlunum stjórnvalda, bæði til að vernda lýðræði og til að skapa gagnsæi í stjórnun samfélagslegra viðbragða við framtíðarfarsóttum.

Þeir telja það brýnt að samfélagið endurmeti nú reynslu sína og læri af þeim sóttvarnaaðgerðum sem gripið var til til þess að tryggja jafnvægi milli lýðræðislegra réttinda og samfélagslegra viðbragða þegar samfélagið stendur frammi fyrir nýjum áskorunum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila