ADHD samtökin: Er stjórnarskipið strand?

Aðalfundur ADHD samtakanna samþykkti einróma ályktun þar sem kallað er eftir skýrri, tímasettri og raunhæfri áætlun stjórnvalda um úrbætur í málefnum fólks með ADHD. Fundurinn fór fram 28. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum sem sjá má með því að smella hér.

Í ályktuninni er bent á að staða málaflokksins hafi lengi verið alvarleg og að enn skorti heildstæða stefnu þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar eftirlitsaðila og opinberra skýrslna. Þar er meðal annars vísað til Grænbókar um stöðu ADHD-mála á Íslandi sem lögð var fram í upphafi síðasta árs.

Þúsundir bíða eftir greiningu

Samkvæmt ályktuninni bíða um 5.000 einstaklingar eftir ADHD-greiningu, þar af um 1.800 börn og nærri 3.000 fullorðnir. Biðtími eftir greiningu og þjónustu getur numið allt að þremur til tólf árum.

Fundurinn telur stöðuna óásættanlega og bendir á að um sé að ræða kerfislægan vanda innan heilbrigðiskerfisins. Sérstök áhersla er lögð á stöðu barna og þörf á skjótum úrbótum á mikilvægum þroskaskeiðum þeirra.

Krefjast heildstæðrar áætlunar

Í ályktuninni er krafist tafarlausra aðgerða og framlagningar heildstæðrar áætlunar sem miði að því að stytta biðtíma, tryggja aðgengi að greiningu, meðferð og eftirfylgd og efla stuðning við börn, fjölskyldur og fullorðna með ADHD.

Þá segir að fjárfesting í málaflokknum sé ekki aðeins brýn heldur einnig samfélagslega hagkvæm, þar sem hún geti leitt til bættrar lýðheilsu, aukinnar þátttöku og betri lífsgæða fyrir þúsundir einstaklinga.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila