
Soffía Karlsdóttir ræddi við Oddnýju Jónsdóttur, formann Píeta-samtakanna, í Tali og tónum um þann stuðning sem stendur aðstandendum og syrgjendum til boða. Píeta aðstoðar ekki aðeins fólk sem glímir sjálft við sjálfsvígshugsanir og sjálfsskaða heldur einnig þá sem standa við hlið ástvinar í miklum erfiðleikum eða hafa misst nákominn í sjálfsvígi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Mikið álag á aðstandendum
Að eiga ástvin sem vill ekki lifa getur lagt gríðarlegt álag á fjölskyldu og aðra nákomna. Píeta býður því aðstandendum viðtöl þar sem þeir geta fengið stuðning og aðstoð við að takast á við þá erfiðu stöðu.
Soffía lagði sérstaka áherslu á hversu þungt það væri fyrir aðstandendur að sitja eftir með spurningar sem jafnvel fengjust aldrei svör við. Tilfinningarnar gætu verið margar og sársaukafullar en mikilvægt væri að fólk fengi svigrúm til að ræða þær og vinna úr þeim.
Þjónusta Píeta nær einnig til þeirra sem syrgja eftir sjálfsvíg. Þar er bæði hægt að fá einstaklingsbundinn stuðning og taka þátt í hópastarfi með öðrum sem hafa gengið í gegnum sambærilega reynslu.
Opnir hópar fyrir fólk sem hefur misst
Meðal þess sem Píeta býður upp á er stuðningshópur fyrir aðstandendur sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi. Edda Björgvinsdóttir og Auður Hallgríms sjá um hópinn og næsti fundur er 2. nóvember kl. 17.
Hópurinn er opinn og ekki þarf að skrá sig fyrirfram heldur má fólk mæta á staðinn.
Stuðningshópar eru einnig starfræktir á Akureyri þar sem Hildur Eir Bolladóttir heldur utan um hópastarf í kapellunni.
Í Vídalínskirkju heldur Bjarni Karlsson utan um hópinn „Feður, bræður, synir, vinir“ fyrir syrgjendur. Næsti fundur þar verður 15. október kl. 16:30.
Hjálpin á að vera innan seilingar
Oddný lagði áherslu á að fólk þyrfti ekki að ganga eitt í gegnum erfiðleikana. Markmiðið væri að sem flestir vissu að hjálp væri til staðar og að þeir væru velkomnir til Píeta.
Soffía tók undir mikilvægi þess að fólki væri mætt af hlýju og skilningi þegar lífið yrði þungt. Hún lagði áherslu á að samkennd og stuðningur gætu skipt miklu þegar fólk ætti erfitt með að sjá leið út úr aðstæðum sínum.
Píeta minnir jafnframt á að síminn 1799 er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa að leita sér aðstoðar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
