
Kristján Örn Elíasson ræddi við Oddgeir Ágúst Ottesen, formann KR og framkvæmdastjóra Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga, í þættinum Við skákborðið um þjóðaratkvæðagreiðsluna og afstöðu hans til áframhaldandi aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Oddgeir sagði hægt að færa rök bæði með og á móti aðild en niðurstaða hans væri að segja nei. Þar vó þungt að hann vill að Ísland haldi stjórn á eigin náttúruauðlindum og telur landið standa betur að vígi utan ESB í deilum um sameiginlega fiskistofna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Vill að Ísland haldi stjórn á sínum auðlindum
Oddgeir taldi stöðu Íslands sterka í samanburði við mörg Evrópuríki. Tekjur væru háar, þjóðin ung og lífeyrissjóðir öflugir á meðan mörg Evrópuríki glímdu við meiri skuldsetningu og öldrun þjóða.
Íslendingar hefðu náð góðum árangri með nýtingu náttúruauðlinda og mannauðs. Oddgeir taldi líklegt að Ísland gæti ekki stjórnað auðlindum sínum með sama hætti innan ESB og nú.
Telur Ísland sterkara utan ESB í fiskveiðideilum
Oddgeir nefndi loðnu, kolmunna og makríl sem dæmi um deilistofna þar sem Ísland þyrfti að gæta eigin hagsmuna. Hann rifjaði upp deilurnar sem urðu þegar makríll gekk í miklum mæli inn í íslenska lögsögu og ágreiningur skapaðist um veiðiheimildir.
Hann taldi Ísland geta náð betri árangri í slíkum deilum utan Evrópusambandsins. Innan þess þyrfti landið að lúta sameiginlegum ákvörðunum sem þar væru teknar.
Vonast eftir góðum samningi ef þjóðin segir já
Oddgeir hafnaði því ekki að kostir gætu fylgt aðild og nefndi evruna í því samhengi. Kristján benti á að erfitt væri að fá einfalt já eða nei þegar bæði kostir og gallar væru til staðar en Oddgeir gaf að lokum skýrt svar og kvaðst ætla að segja nei.
Ef þjóðin segði já vonaðist hann eftir góðum samningi. Hann vildi jafnframt að öll orka stjórnvalda færi ekki í aðildarviðræður næstu árin heldur yrði áfram unnið að mikilvægum verkefnum hér heima.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
