Ætlar að styrkja kristnifræði og endurskoða kynfræðslu í skólum

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra í síðdegisútvarpinu um kristnifræði, Íslandssögu, kynfræðslu og stöðu íslenskrar menningar í grunnskólum landsins. Þar kom fram að ráðherrann vill styrkja sess íslenskra hefða og kristnifræði í skólum, auk þess sem hún telur að endurskoða þurfi hluta þess námsefnis sem tengist kynfræðslu og kynvitund barna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vill sjá íslenskar hefðir fá sterkari sess

Í viðtalinu sagði Inga mikilvægt að íslensk menning, kristin arfleifð og hefðir fengju skýrari stöðu í skólastarfi. Hún nefndi sérstaklega jólahald í skólum, kristnifræði og íslenskar menningarhefðir sem hún taldi hafa veikst undanfarin ár. Að hennar mati væri mikilvægt að börn kynnust íslenskum siðum, sögu og menningararfi frá unga aldri. Hún nefndi einnig Íslendingasögurnar og sagði þær einstakar á heimsvísu og mikilvægan hluta af sjálfsmynd þjóðarinnar.

Inga gagnrýndi jafnframt stjórnleysi og stefnuleysi í menntaumræðu undanfarinna ára og sagði að samfélagið hefði í sumum tilvikum fjarlægst eigin hefðir og menningargrunn of hratt.

Kemur ekki til greina að ung börn fái kynfræðslu sem ekki hæfir aldri

Talsverð umræða varð um kynfræðslu í skólum og þau mörk sem ættu að gilda um slíka fræðslu eftir aldri barna en skv. hegningarlögum er miðað við að börn yngri en 12 ára eigi ekki að meðhöndla efni sem særi blygðunarkennd þeirra. Inga sagði mikilvægt að greina á milli almennrar kynfræðslu og umfjöllunar um kynvitund eða kynjafræði fyrir mjög unga nemendur.

Hún sagði ekki koma til greina að börn sem væru ekki komin á kynþroskaaldur fengju efni sem þau hefðu hvorki þroska né forsendur til að vinna úr. Á sama tíma lagði hún áherslu á að börn sem upplifðu sig öðruvísi ættu rétt á virðingu og stuðningi innan skólakerfisins og að ekki mætti leggja þau í einelti eða útilokun.

Arnþrúður vísaði til þess hvernig vókismi hafi haft áhrif á nám í skólum og spurði hvort ráðherrann hygðist endurskoða ákveðna þætti námsins með tilliti til þessa. Inga sagði þau mál vera til skoðunar og að hún vildi tryggja að skólastarf tæki mið af íslenskum aðstæðum og þörfum barna.

Áhersla á íslensku og þjóðarsjálfsmynd

Í viðtalinu kom einnig fram að ráðherrann telur mikilvægt að börn hafi sterkan lesskilning og tengingu við íslenskt tungumál og menningu. Hún sagði nauðsynlegt að standa vörð um íslenska tungu og samfélag þar sem Ísland væri lítið samfélag sem þyrfti sjálft að verja eigin menningararf. Að hennar mati ættu skólar ekki aðeins að miðla þekkingu heldur einnig styrkja sjálfsmynd barna og tengsl þeirra við íslenskt samfélag og sögu landsins.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila