Áfram Ísland boðar opinn fund á Sauðárkróki um þjóðaratkvæðagreiðsluna

Samtökin Áfram Ísland efna til opins fundar í Frímúrarasalnum á Sauðárkróki laugardaginn 8. ágúst kl. 17:30. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Á fundinum verður fjallað um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst, framtíð Íslands og rök fyrir því að hagsmunum landsins sé best borgið utan Evrópusambandsins.

Þrír frummælendur taka til máls

Frummælendur á fundinum verða Hólmsteinn Orri Þorleifsson bóndi, Stefanía Hjördís Leifsdóttir ferðaþjónustubóndi og Konráð Guðjónsson hagfræðingur.

Fundarstjóri verður Gísli Sigurðsson, framkvæmdastjóri Tengils.

Fundurinn er opinn öllum en þátttakendur þurfa að skrá sig fyrir fram.

Smelltu hér til þess að skrá þig.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila