
Samtökin Áfram Ísland efna til opins fundar í Brekkubæjarskóla á Akranesi á morgun, 16. júlí, klukkan 17:00.
Þrír frummælendur taka til máls
Frummælendur á fundinum verða Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, og Valdís Marselía Þórðardóttir tannlæknir, móðir og áhrifavaldur.
Fundarstjóri verður Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur.
Fjölmiðlar fá tækifæri til viðtala
Að fundinum loknum gefst fjölmiðlum kostur á að ræða við ræðumenn og forsvarsmenn Áfram Íslands.
Fundurinn er opinn öllum og verður jafnframt streymt.
Smelltu hér til þess að skrá þig á fundinn.
