
Boðað hefur verið til stofnfundar regnhlífarsamtaka sem bera heitið Áfram Ísland. Stofnfundurinn verður haldinn í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll mánudaginn 6. júlí klukkan 17. Á vefsíðu samtakanna kemur fram að Áfram Ísland sé opinn vettvangur fólks sem telur að framtíð Íslands eigi að byggjast á sjálfstæðum ákvörðunum þjóðarinnar. Markmið hreyfingarinnar sé að standa fyrir jákvæðri og bjartsýnni umræðu um stöðu Íslands og leggja áherslu á að landið geti tekist á við framtíðaráskoranir á eigin forsendum.
Þá kemur fram að þátttakendur komi úr ólíkum áttum íslensks samfélags en eigi það sameiginlegt að telja Ísland vera land tækifæranna og hagsmunum þjóðarinnar sé best borgið utan Evrópusambandsins.
Ólafur meðal ræðumanna á stofnfundinum
Það vekur óneitanlega athygli að meðal ræðumanna á fundinum er Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands í 20 ár. Ólafur hefur staðið með íslensku þjóðinni á ögurstundu og eins og kunnugt er vísaði Ólafur Icesave málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu í tvígang. Einnig flytja Björn Zoëga læknir og fyrrverandi forstjóri Landspítala Háskólasjúkrahúss og Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti erindi á fundinum. Fundarstjóri verður Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur.
Fundinum streymt á netinu
Fundinum verður streymt í beinni útsendingu og hvetja skipuleggjendur fólk til að fylgjast með honum bæði í Sjálfstæðissalnum og á heimilum eða á sameiginlegum samkomum víða um land. Streymið verður opið á helstu vefmiðlum og á heimasíðu Áfram Íslands en þeir sem skrá sig í félagið fá jafnframt sendan hlekk á útsendinguna.
Fundurinn er öllum opinn
Smelltu hér til þess að skoða heimasíðu samtakanna og skrá þig – aframisland.is
