Áfram Ísland opnar vefsíðu og birtir nýja skýrslu


Áfram Ísland hefur opnað nýja vefsíðu, aframisland.is, og birt þar nýja skýrslu þar sem fram kemur að lífskjör og efnahagsleg staða Íslands standi almennt traustari fótum en í flestum ríkjum Evrópusambandsins. Á vefnum má einnig nálgast upplýsingar um starf vettvangsins, þær ræður sem fluttar voru á opnunarfundi Áfram Íslands, sem yfir 800 manns sóttu mánudaginn 6. júlí, auk annars fræðsluefnis og upplýsinga um helstu álitaefni sem snúa að þjóðaratkvæðagreiðslunni. Þetta segir í tilkynningu frá Áfram Ísland.

Lífskjör og helstu hagstærðir

Skýrslan, sem unnin er af Kontext ehf. í samstarfi við Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE), ber saman lífskjör og helstu hagstærðir á Íslandi og í aðildarríkjum Evrópusambandsins. 

Kaupmáttu með besta móti og vex hratt

Í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði. Niðurstöður skýrslunnar sýna að Ísland stendur  ESB ríkjum framar og að þróun efnahagsmála hafi verið hagfelldari síðustu ár, hvort sem horft er til hagvaxtar, atvinnuleysis, framleiðni eða opinberra fjármála. Kaupmáttur er ennfremur með því mesta sem gerist á Íslandi og hefur vaxið hratt á undangengnum árum. Ljóst er þó að háir vextir og mikil verðbólga standa hagkerfinu fyrir þrifum. Það skýrist þó einkum af ólíkri hagþróun og að launahækkanir hafi verið mun meiri á Íslandi en í ESB.

Dreifðari lífskjör

Skýrslan sýnir einnig að lífskjör á Íslandi eru ekki aðeins meðal þeirra bestu sem gerast heldur virðist þeim jafnframt dreift með jafnari hætti en almennt innan ESB. Sérstaklega er bent á sterka stöðu ungs fólks á Íslandi, þar sem hlutfall þeirra sem eru hvorki í vinnu, námi né starfsþjálfun er það lægsta meðal samanburðarríkja. Þá kemur einnig fram að hagstæð aldurssamsetning þjóðarinnar styrki stöðu Íslands til að mæta þeim áskorunum sem fylgja öldrun samfélaga á komandi áratugum.

Helstu niðurstöður skýrslunnar sem finna má á vef Áfram Íslands benda því til þess að lífskjör og efnahagsleg staða Íslands standi almennt traustari fótum en í flestum ríkjum Evrópusambandsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila