
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Mörtu Guðjónsdóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, í þættinum Skipulagsmál á Útvarpi Sögu, um fasteignagjöld, sölu byggingarréttar og fjárhagslega hvata sveitarfélaga í skipulagsmálum. Hjördís setti fram hugmynd um að aftengja fasteignagjöld markaðsverði húsnæðis þannig að tekjur sveitarfélaga hækkuðu ekki sjálfkrafa með fasteignaverði. Marta tók undir að ástæða væri til að skoða fyrirkomulagið og áhrif þess á húsnæðiskostnað. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Sveitarfélög hagnast á hækkandi fasteignaverði
Hjördís gagnrýndi að tekjur sveitarfélaga af fasteignagjöldum hækkuðu þegar fasteignamat og húsnæðisverð hækkuðu. Hún taldi þetta skapa fjárhagslegan hvata til að viðhalda háu fasteignaverði og byggja þétt og hátt.
Hún nefndi jafnframt tekjur sveitarfélaga af sölu byggingarréttar. Í umræðunni hafði komið fram að lóðar- og innviðakostnaður gæti numið 24 milljónum króna fyrir 60 fermetra íbúð og 40 milljónum fyrir 100 fermetra íbúð áður en byggingarframkvæmdir hæfust.
Að mati Hjördísar þyrfti að fjarlægja þessa hvata úr kerfinu svo ákvarðanir um skipulag og uppbyggingu réðust ekki af mögulegum tekjum sveitarfélaganna.
Fast gjald í stað tengingar við fasteignamat
Hjördís lagði til að fasteignagjöld yrðu frekar ákveðin sem föst fjárhæð sem tæki hóflegum breytingum samkvæmt tiltekinni vísitölu, til dæmis launa- eða neysluvísitölu.
Hún velti einnig upp möguleikanum á að gjöldin miðuðust við landrými fremur en markaðsverð bygginga. Þannig myndi hækkun fasteignaverðs ekki sjálfkrafa auka tekjur sveitarfélaganna.
Til samanburðar nefndi hún fyrirkomulag í Svíþjóð, þar sem hún sagði ríkið annast innheimtu fasteignagjalda og sérstakar reglur gilda um nýbyggingar.
Marta sagðist ekki þekkja þá útfærslu en fannst hugmyndin áhugaverð og vildi kynna sér hana betur. Hún sagði eðlilegt að endurskoða reglulega hvernig opinber gjöld væru innheimt.
Sala byggingarréttar eykur húsnæðiskostnað
Hjördís spurði einnig hvers vegna hægt væri að selja byggingarrétt á lóðum sem væru í eigu annarra. Hún benti á að stór hluti lóða í Reykjavík væri leiguland og dró í efa að eðlilegt væri að hagnast á réttindum tengdum landi sem viðkomandi ætti ekki.
Marta útskýrði að bæði eignarlóðir og leigulóðir væru í Reykjavík, þótt þær síðarnefndu væru mun algengari. Byggingarréttur gæti gengið kaupum og sölum og það hefði að hennar mati áhrif til hækkunar á íbúða- og leiguverði.
Endurskoða þarf reglur um uppbyggingu í eldri hverfum
Marta tengdi umræðuna við áhrif fjárhagslegra hvata á byggðamynstur Reykjavíkur. Hún gagnrýndi að háreistar byggingar væru skipulagðar innan eldri hverfa án nægilegs tillits til þeirrar byggðar sem fyrir væri.
Hún nefndi meðal annars háhýsi við Skúlagötu og fyrirhugaða uppbyggingu á fyrrverandi ESSO-lóðinni við Ægisíðu. Þar þyrfti að hennar mati að setja skýrari reglur um byggingarhæðir og samræmi nýbygginga við umhverfið.
Marta taldi mikilvægt að skipulagsákvarðanir tækju mið af sérkennum hverfanna og þörfum íbúanna. Hún tók jafnframt undir að skoða mætti hvort breytt innheimta fasteignagjalda gæti dregið úr fjárhagslegum hvötum til að auka byggingarmagn.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
