
Kristján Örn Elíasson ræddi við Gunnar Frey Rúnarsson, formann Víkingaklúbbsins og Björn Þorfinnsson, alþjóðlegan skákmeistara, í þættinum Við skákborðið, um Evrópukeppni taflfélaga sem framundan er. Björn sagði keppnina einstaka fyrir þær sakir að þar tefldu áhugamenn og bestu skákmenn heims á sama vettvangi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Aðeins ein skák á dag
Evrópukeppni taflfélaga er liðakeppni sem Björn þekkir vel eftir fjölmargar ferðir með Víkingaklúbbnum. Hann sagði fyrirkomulag mótsins frábrugðið því sem nú tíðkast á mörgum öðrum skákmótum.
Tefldar eru 7 umferðir og aðeins ein skák á dag. Björn sagði slíkt orðið sjaldgæft enda væri mörgum skákum gjarnan þjappað saman á hvern keppnisdag til að stytta ferðatíma.
Sérstaðan felst einnig í gríðarlegum mun á styrkleika keppenda. Á sama móti geta verið áhugamenn og skákmenn úr hópi þeirra bestu í heiminum.
Björn sagði liðakeppnina höfða sérstaklega til sín. Honum þætti mun skemmtilegra að tefla fyrir lið en eingöngu fyrir sjálfan sig og því hentaði Evrópukeppnin honum vel.
Keppnisferðir með menningarívafi
Björn hefur mikla reynslu af Evrópukeppninni með Víkingaklúbbnum og sagðist hafa farið með félaginu á 9 af 10 mótum. Klúbburinn sleppti keppninni í fyrra en fram að því hafði Björn tekið þátt í öllum ferðunum.
Hann lýsti ferðunum sem blöndu af keppnis- og menningarferðum. Gunnar hefði reynst mjög góður fararstjóri og treyst liðsmönnum sínum í stað þess að stunda smástjórnun. Menn vissu hvert hlutverk þeirra væri og verkefnið væri einfalt þegar að skákborðinu kæmi: að berjast og gera sitt besta.
Gunnar gerði lítið úr eigin fararstjórn og kallaði hana „amatörfararstjórn á hæstu nótum“. Hann sagði traustið skipta mestu máli og að hvorki hann né Björn þyrftu mikið eftirlit.
Mætti ekki í fyrstu umferðina
Björn rifjaði þó upp eina undantekningu frá því þegar allt gekk samkvæmt áætlun. Á Evrópukeppninni í Struga árið 2021 var hann paraður í 1. umferð en mætti ekki til leiks.
Hann áttaði sig of seint á því að hann yrði enn á ferðalagi þegar skákin hæfist og sendi Gunnari skilaboð um að hann kæmist ekki. Björn sagði þetta ekki hafa verið góða byrjun á ferðinni en margar skemmtilegar sögur hefðu orðið til í þessum ferðum í gegnum árin.
Evrópukeppni taflfélaga hefur þannig orðið fastur liður í starfi Víkingaklúbbsins. Gunnar sagði félagið hafa tekið þátt árlega þar til keppninni var sleppt í fyrra en nú væri Evrópukeppnin aftur meðal verkefna vetrarins.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
