
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Guðmund Karl Snæbjörnsson, lækni í síðdegisútvarpinu, um hvernig ákvarðanir Anthony Fauci, fyrrverandi sóttvarnalæknis Bandaríkjanna, hefðu haft áhrif á viðbrögð við COVID-19 víða um heim, þar á meðal á Íslandi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Þríeykið fór eftir ákvörðunum Fauci
Guðmundur Karl sagði að yfirheyrslan yfir Anthony Fauci skipti ekki aðeins máli fyrir Bandaríkin heldur einnig fyrir Ísland. Hann sagði að áhrif Fauci hefðu náð út fyrir Bandaríkin þar sem ráðleggingar hans hefðu mótað viðbrögð stjórnvalda víða um heim.
Hann dró þar hliðstæðu við störf Þórólfs Guðnasonar, Ölmu D. Möller og Víðis Reynissonar hér á landi og sagði að ákvörðanir sem teknar voru í Bandaríkjunum hefðu endurspeglast í íslenskum sóttvarnaaðgerðum.
WHO stýrði alþjóðlegum sóttvörnum með ráðleggingum sínum
Guðmundur Karl sagði að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefði verið í lykilstöðu við að miðla ráðleggingum til aðildarríkja og þær hefðu orðið grunnur að aðgerðum stjórnvalda í fjölmörgum löndum. Hann sagði Ísland hafa fylgt þeirri stefnu líkt og önnur ríki.
Arnþrúður sagði að þess vegna gæti rannsókn bandaríska þingsins haft þýðingu langt út fyrir Bandaríkin þar sem hún kynni að varpa ljósi á forsendur þeirra ráðlegginga sem stjórnvöld um allan heim byggðu ákvarðanir sínar á.
Fjármögnun WHO frá Bill Gates og lyfjarisum
Guðmundur Karl sagði að aðeins lítill hluti fjármögnunar WHO kæmi frá aðildarríkjum stofnunarinnar. Hann sagði um 88% tekna WHO koma frá öðrum aðilum og nefndi Bill & Melinda Gates Foundation, Gavi og fleiri fjármögnunaraðila sem dæmi.
Hann sagði að vegna þessa væri mikilvægt að skoða hvaða áhrif þeir sem leggja stofnuninni til fjár, hefðu á verkefnaval hennar og forgangsröðun. Arnþrúður sagði að þessi tengsl skiptu máli þegar metin væru áhrif WHO á alþjóðlega stefnumótun í faraldrinum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
