Albert Guðmundsson kjörinn nýr formaður Varðar

Albert Guðmundsson, lögfræðingur, f.v. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður Heimdallar, var á laugardag á aðalfundi kjörinn formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.

Albert tekur við af Agli Þór Jónssyni, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Auk Alberts voru kjörin í stjórn Bryndís Ýr Pétursdóttir, Einar S. Hálfdánarson, Guðfinna Ármannsdóttir, Janus Arn Guðmundsson, Óttar Guðjónsson, Rúna Malmquist og Sigurður Helgi Birgisson.

„Ég hlakka til að taka við því öfluga starfi sem Vörður, eitt stærsta kjördæmisráð landsins, heldur úti. Ég fann fyrir miklum krafti á þinginu sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu vafalaust taka með sér inn í síðari hálfleik kjörtímabilsins,“ segir Albert.

Hann segir málefnastöðu Sjálfstæðisflokksins í Reyjavík vera sterka

„Málefnastaða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er sterk og ég efast ekki um að borgarbúar taki vel í þær hugmyndir sem rætt var um á Reykavíkurþinginu. Þar vakti helst athygli kynning á nýrri framtíðarsýn Sjálfstæðisflokksins í samgöngu- og skipulagsmálum, en Sjálfstæðismenn í Reykjavík vilja meðal annars koma nýjum stofnæðum höfuðborgarsvæðisins fyrir neðanjarðar. Nú er lag enda er ljóst að taka þarf upp aðalskipulag Reykjavíkurborgar vegna þeirrar nýju stöðu sem uppi er vegna Reykjaneselda. Nú þarf að horfa til norðurs og norðausturs og byggja Borgina við sundin,“ segir hann.

Á aðalfundinum voru einnig samþykktar álytanir um landamæragæslu og útlendingamál en í láyktuninni um landamæragæslu segir að að taka beri upp tímabundið eftirlit á landamærum Íslands vegna alvarlegrar ógnar við allsherjarreglu og þjóðaröryggi.

Í ályktun um útlendingamálin segir að að sett verði í forgang á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um útlendinga og þau verði samþykkt á þessu vorþingi. Mikilvægt sé að löggjöfin hérlendis sé sambærileg því sem gerist á Norðurlöndunum. Ásamt því er mikilvægt að dómsmálaráherra vinni áfram að nauðsynlegum lagabreytingum til að koma á lokuðum búsetuúrræðum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila