
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Björn Ágúst Björnsson, stjórnarmann Matsmannafélags Íslands, og Andra Rey Haraldsson, formann Félags íslenskra rafvirkja og varaformann Rafiðnaðarsambandsins, í þættinum Skipulagsmá, um ástandsskýrslur fasteigna og aukna neytendavernd við fasteignakaup. Björn sagði best væri að allar eignir færu í ástandsskoðun áður en þær væru settar á sölu svo kaupandi vissi hvað hann væri að kaupa og raunverulegt ástand eignarinnar endurspeglaðist í verðinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Kaupandinn viti hvað hann er að kaupa
Matsmannafélagið vill horfa til norskrar fyrirmyndar þar sem gerðar eru staðlaðar og auðskiljanlegar ástandsskýrslur um fasteignir. Slík skýrsla þyrfti ekki aðeins að fjalla um eiginlega byggingargalla heldur einnig atriði sem kaupandi sæi ekki endilega við venjulega skoðun, svo sem skemmdir á gluggum, þaki eða öðrum byggingarhlutum.
Hjördís benti á að þá vissi kaupandinn betur hvað hann væri að kaupa og gæti boðið í eignina með hliðsjón af því.
Það er einmitt meginhugmyndin að sögn Björns. Ef eign hefur ekki fengið eðlilegt viðhald ætti það að koma fram áður en kaup eru gerð og endurspeglast í söluverðinu. Að sama skapi ætti vel viðhaldin og endurnýjuð eign að njóta þess í verðmati.
Rafmagn og pípulagnir endurnýjuð innan 50 ára
Aldur hússins skiptir miklu þegar ástand þess er metið. Björn nefndi 25 og 50 ára viðmið og sagði að þegar hús væri orðið 50 ára ætti samkvæmt eðlilegum viðmiðum að vera búið að endurnýja rafmagn, pípulagnir innan húss og undir því, þak og glugga.
Á um 25 ára fresti væri einnig eðlilegt að sinna ýmsum viðhaldsþáttum, meðal annars á tréverki, gluggum og þaki. Ef hús væri orðið 60 ára og engar upplýsingar lægju fyrir um slíkar endurbætur ætti ástandsskýrslan að vekja athygli á því að líftími viðkomandi byggingarhluta gæti verið liðinn.
Skýrslan væri því ekki dómur um að allt væri ónýtt heldur upplýsingar sem kaupandinn gæti byggt ákvörðun sína á.
„Smurbók“ fylgi húsinu
Björn sagði einnig hafa komið fram hugmynd um nokkurs konar smurbók fasteignarinnar þar sem upplýsingar um mikilvægt viðhald væru varðveittar hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Ef rafvirki endurnýjaði rafmagnstöflu gætu þær upplýsingar til dæmis fylgt eigninni. Þannig þyrfti ekki að reiða sig á minni húseiganda mörgum árum síðar þegar eignin væri seld.
Hjördís líkti þessu við upplýsingar sem liggja fyrir um ástand og skoðanir bíla. Björn sagði skráninguna eiga að snúast um raunverulegt viðhald eignarinnar en ekki smávægileg atriði eins og hvaða litur hefði verið málaður á veggi.
Stærri fjárfesting en bíllinn
Andri sagði ástandsskýrslur vera mjög gott verkefni og undraðist að hugmyndin hefði ekki fengið meira brautargengi á Alþingi. Fasteign væri yfirleitt stærsta fjárfesting sem fólk réðist í á ævinni og skuldbindingin gríðarleg.
Hann benti á að ástandsskoðun við sölu bíla væri þekkt fyrirkomulag þótt bíll væri langtum minni fjárfesting en íbúð.
Aukið eftirlit væri einnig hagur fagmanna. Vandvirkir iðnaðarmenn fengju þá staðfestingu á gæðum vinnu sinnar en fyrirtæki sem undirbyðu markaðinn með því að fara ekki eftir leikreglum eða lögum hefðu síður forskot.
Björn sagði ástandsskýrslur gríðarlegt hagsmunamál fyrir neytendur og að málið varðaði ekki aðeins kaupanda og seljanda heldur fasteignamarkaðinn í heild.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
