
Allt að 48 þúsund heimili eru á leigumarkaði hér á landi samkvæmt nýju mati Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Það eru um 2.000 færri heimili en stofnunin áætlaði í fyrra, þrátt fyrir að hlutfall fullorðinna Íslendinga á leigumarkaði hafi hækkað úr 28% í 29% milli ára. Breytingin skýrist einkum af því að fleiri einstaklingar búa nú að meðaltali á hverju leiguheimili.
HMS hefur endurmetið stærð leigumarkaðarins með hliðsjón af nýjum niðurstöðum úr búsetukönnun og leigumarkaðskönnun stofnunarinnar. Nánar verður fjallað um niðurstöðurnar í mánaðarskýrslu HMS sem kemur út 19. nóvember.
Um 106 þúsund manns búa í leiguhúsnæði
Samkvæmt nýja matinu búa um 106 þúsund einstaklingar í leiguhúsnæði hér á landi.
Meðalfjöldi íbúa á hverju leiguheimili hefur aukist úr 2,1 í fyrra í 2,2 í ár. Þessi breyting skýrir að stórum hluta hvers vegna áætluðum fjölda leiguheimila fækkar þótt hlutfall fullorðinna á leigumarkaði hafi hækkað.
Í fyrra áætlaði HMS að allt að 50 þúsund heimili væru á leigumarkaði. Nýja matið gerir ráð fyrir að þau séu um 48 þúsund.
Fækkunin felur því ekki endilega í sér að færri einstaklingar búi í leiguhúsnæði, heldur að fleiri búi saman á hverju heimili.
Færri börn búa í leiguhúsnæði
Niðurstöður búsetukönnunar HMS benda jafnframt til þess að hlutfall barna sem búa í leiguhúsnæði hafi lækkað milli ára.
Áætlað er að um 20% barna búi nú í leiguhúsnæði, samanborið við 23% í fyrra.
Þessar niðurstöður eru meðal þeirra upplýsinga sem HMS notar við mat á heildarfjölda einstaklinga á leigumarkaði.
Þar sem leigumarkaðskönnun stofnunarinnar nær aðeins til fólks 18 ára og eldra þarf að áætla sérstaklega hversu mörg börn búa á leiguheimilum.
Byggja matið á könnunum og mannfjöldatölum
Við útreikningana nýtir HMS niðurstöður leigumarkaðskönnunar eftir aldri og kyni og ber þær saman við mannfjöldatölur Hagstofu Íslands.
Til að áætla fjölda barna á leigumarkaði er stuðst við búsetukönnun HMS, þar sem þátttakendur eru meðal annars spurðir hversu mörg börn búi á heimili þeirra.
Út frá þeim upplýsingum er áætlað hvernig börn 17 ára og yngri skiptast milli leiguhúsnæðis og annarra búsetuforma.
Með þessari aðferð kemst HMS að þeirri niðurstöðu að um 106 þúsund einstaklingar búi á leigumarkaði og að fjöldi leiguheimila sé allt að 48 þúsund.
Nánari greining á stærð og þróun leigumarkaðarins verður birt í mánaðarskýrslu stofnunarinnar 19. nóvember.
