Alþjóðleg reynsla varð lykillinn að áhrifum Íslands í forsetatíð Ólafs

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í tilefni af útkomu bókar hans Vegferð um veröldina. Í bókinni rekur hann hvernig áratugalöng reynsla af alþjóðastjórnmálum, rannsóknum og samstarfi við erlenda ráðamenn mótaði starfsaðferðir hans og nýttist honum síðar í forsetaembættinu. Með persónulegum tengslum og þekkingu á stjórnkerfum stórveldanna tókst honum að efla samskipti Íslands við Bandaríkin, Kína, Indland og fjölmörg önnur ríki. Hann sagði reynsluna sýna að fulltrúar smáríkja gætu haft veruleg áhrif ef þeir kynnu að beita réttum aðferðum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Áratugalangt samstarf varð grunnur að forsetastarfinu

Ólafur Ragnar rifjaði upp í þættinum að áður en hann var kjörinn forseti árið 1996 hefði hann um langt árabil tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi við stjórnmálamenn, fræðimenn og embættismenn í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Þar hefði hann lært hvernig byggja mætti upp tengsl og koma tillögum á framfæri við áhrifamestu ráðamenn heims.

Arnþrúður spurði hvort forsetaembættið hefði opnað honum dyr sem áður hefðu verið lokaðar. Hann svaraði að reynslan fyrir forsetakjörið hefði þegar sýnt honum að hægt væri að ná árangri á alþjóðavettvangi sem fulltrúi Íslands. Forsetaembættið hefði hins vegar gert honum kleift að nýta þessi tengsl og starfsaðferðir með markvissum hætti í þágu íslenska ríkisins.

Hann rifjaði jafnframt upp að í forsetakosningunum 1996 hefði komið honum á óvart hversu vel almenningur þekkti alþjóðlegt starf hans, þótt lítið hefði verið fjallað um það í íslenskum fjölmiðlum.

Tengsl við bandaríska þingið opnuðu dyr Hvíta hússins

Ólafur Ragnar nefndi sem áhrifamikið var fundur hans með Bill Clinton Bandaríkjaforseta. Íslenska utanríkisráðuneytið hefði nánast gefist upp á að útvega fundinn en honum tekist að koma honum á með því að nýta tengsl sín við bandaríska þingmenn.

Hann hafði um árabil starfað með þingmönnum, sérfræðingum og embættismönnum í Washington og þekkti því vel hvernig bandaríska stjórnkerfið starfaði.

Ólafur Ragnar sagði mikilvægt að rækta tengsl við bandaríska þingið fremur en að einblína á forsetann og nánustu samstarfsmenn hans. Þekking á stjórnskipan og persónuleg tengsl væru lykillinn að því að ná varanlegum árangri.

Ísland braut blað í samskiptum við stórveldi Asíu

Sömu aðferðir nýttust við að efla samskipti Íslands við Kína og Indland. Í forsetatíð Ólafs Ragnars, varð Ísland fyrsta Norðurlandaríkið sem forseti Kína heimsótti í opinberri heimsókn. Sama gilti um heimsókn forseta Indlands nokkrum árum síðar.

Ólafur Ragnar var jafnframt fyrsti þjóðhöfðingi Norðurlandanna til að fara í opinbera heimsókn til Indlands. Hann sagði aðrir evrópskir þjóðhöfðingjar hefðu spurt hvernig honum hefði tekist að koma þessum samskiptum á.

Hann lagði áherslu á að ríkisheimsóknir væru ekki persónuleg ferðalög þjóðhöfðingja heldur æðsta stig diplómatískra samskipta ríkja. Með þeim væru tengsl milli þjóðanna styrkt og nýir möguleikar skapaðir fyrir íslenska ríkið.

Þessari aðferðafræði beitti hann einnig í samskiptum við ríki Mið- og Austur-Evrópu, meðal annars Pólland og Eystrasaltsríkin.

Reynslan frá Manchester mótaði starfsaðferðirnar

Ólafur Ragnar sagði grunninn að alþjóðlegu starfi sínu hafa verið lagðan þegar hann fór 19 ára til náms í Manchester árið 1962. Þar kynntist hann breskri stjórnmálahefð, alþjóðlegum fræðimönnum og rannsóknum á lýðræðiskerfum Evrópu.

Hann starfaði meðal annars með norska stjórnmálafræðingnum Stein Rokkan og öðrum áhrifamiklum fræðimönnum áður en hann tók þátt í að byggja upp stjórnmálafræðikennslu sem prófessor við Háskóla Íslands árið 1970.

Ólafur Ragnar sagði þessa reynslu hafa kennt sér að þegar fulltrúar smáríkja hittu leiðtoga stórvelda skipti mestu máli hvað þeir hefðu fram að færa. Þeir þyrftu að mæta vel undirbúnir, leggja fram raunhæfar tillögur og skilja hagsmuni þeirra sem þeir ræddu við.

Í bókinni Vegferð um veröldina, rekur hann hvernig þessi vegferð frá Manchester, í gegnum alþjóðlegt stjórnmála- og friðarstarf, varð að vegarnesti sem nýttist honum síðar á Bessastöðum. Hann sagði það hafa verið eina mikilvægustu niðurstöðu reynslu sinnar að stærð þjóðar réði ekki úrslitum um möguleika hennar til áhrifa á alþjóðavettvangi.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila