
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Pál Einarsson, jarðeðlisfræðing og Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðing og fagstjóra aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, í þættinum Skipulagsmál um vöktun náttúruvár. Benedikt sagði umfangsmikið mælikerfi gera Íslendingum kleift að halda úti nútímasamfélagi þrátt fyrir mikla jarðfræðilega virkni og að án vöktunarinnar væri manntjón mun meira og reglulegra. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Yfir 200 GPS-mælar vakta hreyfingar jarðskorpunnar
Þegar Páll hóf störf á þessu sviði voru aðeins örfáir jarðskjálftamælar á landinu. Í dag eru GPS-mælarnir orðnir yfir 200 og jarðskjálftamælarnir rúmlega 100.
GPS-mælarnir nema mjög litlar breytingar á jarðskorpunni. Með þeim er meðal annars hægt að fylgjast með hvort land rísi eða þenjist út þegar kvika safnast fyrir undir yfirborðinu.
Mælarnir sýna einnig flekarek og hvernig jarðskorpan aflagast þegar spenna byggist upp. Sú spenna getur síðar losnað í jarðskjálftum eða kvikuinnskotum.
Benedikt nefndi Grindavík árið 2023 og Holuhraun árið 2014 sem dæmi um atburði þar sem miklar breytingar urðu í jarðskorpunni.
Vöktunin segir hvenær ástæða er til að hafa áhyggjur
Benedikt lýsti vöktuninni sem lykli að því að geta búið á Íslandi. Ekki nægði að vita að skjálftar, eldgos eða skriður gætu orðið heldur þyrfti að greina hvenær breytingar væru þess eðlis að ástæða væri til aukinnar varúðar.
Vöktunin nær því langt út fyrir eldgos og jarðskjálfta. Veður, snjóflóð og skriðuhætta eru einnig meðal þeirra þátta sem þarf að fylgjast stöðugt með.
GPS-mælar geta varað við skriðum
GPS-tæknin er einnig notuð á svæðum þar sem hætta er á skriðuföllum. Benedikt nefndi Seyðisfjörð sem dæmi þar sem mælar eru staðsettir í hlíðum til að fylgjast með hreyfingum. Ef hlíð fer að skríða hægt fram má greina breytinguna í mælingunum. Með rauntímaúrvinnslu er jafnframt mögulegt að sjá stórar hreyfingar þegar skriða fer af stað og þannig skapa grundvöll fyrir viðvörun.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
