Andlegri líðan barna hrakar og 13% framhaldsskólanema segjast hafa orðið fyrir nauðgun

Vísbendingar eru um versnandi andlega líðan barna og ungmenna á Íslandi og ný gögn sýna jafnframt há hlutföll eineltis og kynferðisofbeldis. Um 13% framhaldsskólanema segjast hafa orðið fyrir nauðgun, þar af 20% stúlkna og 7% drengja. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um lýðheilsuáskoranir barna og ungmenna.

Skýrslan var kynnt fyrir ráðherranefnd um málefni barna í vikunni. Starfshópurinn segir áskoranirnar fjölþættar og að þær geti haft áhrif hver á aðra. Aðstæður barna skipta jafnframt miklu. Börn sem telja sig búa við erfiða fjárhagsstöðu mælast með lakari líðan og lífsánægju og veikari félagsleg tengsl en önnur börn.

Fleiri finna fyrir depurð og kvíða

Samkvæmt skýrslunni eru vísbendingar um að andlegri líðan barna hafi hrakað undanfarna áratugi. Dagleg depurð og kvíði hafa aukist meðal unglinga og lífsánægja stúlkna hefur minnkað. Um 11% barna í 8.–10. bekk segjast einmana og 16% upplifa sig utangarðs í skólanum.

Aðeins 31% framhaldsskólanema segjast eiga traustan fullorðinn einstakling í skólanum sem þeir geti leitað til.

Hátt hlutfall greinir frá ofbeldi

Skýrslan dregur einnig fram alvarlegar tölur um einelti og kynferðisofbeldi.

Um 21% barna í 4. bekk höfðu orðið fyrir einelti og 14% barna í 8. og 10. bekk greindu frá því að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Meðal framhaldsskólanema sögðust 13% hafa orðið fyrir nauðgun. Hlutfallið var mun hærra meðal stúlkna, eða 20%, samanborið við 7% meðal drengja.

Aðeins fimmtungur hreyfir sig samkvæmt ráðleggingum

Hreyfing barna er einnig undir ráðleggingum. Innan við fjórðungur barna í 7. bekk og um fimmtungur barna í 10. bekk hreyfir sig í samræmi við ráðleggingar embættis landlæknis.

Skýrsluhöfundar telja mikilvægt að leggja grunn að reglulegri hreyfingu snemma og samþætta daglega hreyfingu betur skóla- og frístundastarfi.

Mataræði barna er sömuleiðis sagt áhyggjuefni. Neysla grænmetis, ávaxta og heilkorns er undir ráðleggingum en neysla næringarsnauðs fæðis mikil.

Árið 2024 voru 26% barna á Íslandi með ofþyngd eða offitu samanborið við 19% að meðaltali á hinum Norðurlöndunum. Nýjustu ítarlegu landskannanir á mataræði íslenskra barna eru jafnframt orðnar 10–20 ára gamlar.

30% fá meira koffín en talið er öruggt

Skjánotkun, orkudrykkir og nikótín eru einnig meðal þeirra áskorana sem fjallað er um. Rúmlega 18% barna í 7. bekk fara oft eða alltaf með snjalltæki í rúmið. Um 36% barna í 10. bekk drekka orkudrykki vikulega eða oftar og 30% barna í 8.–10. bekk fá meira koffín en talið er öruggt.

Um fjórðungur framhaldsskólanema hefur notað nikótínpúða.

Árangur hefur hins vegar náðst í að draga úr ölvunardrykkju unglinga frá tíunda áratugnum. Þrátt fyrir það hafa 25% framhaldsskólanema yngri en 18 ára einhvern tíma orðið mjög ölvuð og kannabisnotkun meðal nemenda í 10. bekk hefur lítið breyst um árabil.

Vill samræmdar aðgerðir stjórnvalda

Starfshópurinn leggur áherslu á að ekki sé hægt að takast á við þessar áskoranir hverja fyrir sig. Aðgerðir þurfi að ná þvert á málaflokka og stjórnsýslustig og tengja saman almenna heilsueflingu, snemmtækar forvarnir og sérstakan stuðning við viðkvæma hópa.

Smelltu hér til þess að lesa skýrsluna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila