Andri: Oft ekkert gert fyrr en rafmagnið slær út eða kviknar í töflunni

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Andra Rey Haraldsson, formann Félags íslenskra rafvirkja og varaformann Rafiðnaðarsambandsins, og Björn Ágúst Björnsson, stjórnarmann Matsmannafélags Íslands, í þættinum Skipulagsmál, um viðhald fasteigna og endurnýjun raflagna. Andri sagði fólk almennt ekki nægilega meðvitað um hvenær tímabært væri að endurnýja rafmagn og oft væri ekkert gert fyrr en rafmagnið færi að slá út eða jafnvel kviknaði í rafmagnstöflunni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Erfitt að sjá hvenær komið er að endurnýjun

Hjördís spurði hvernig venjulegur húseigandi ætti að vita hvenær tímabært væri að láta fara yfir rafmagnstöfluna. Ef ekkert augljóst sæist þegar hún væri opnuð væri erfitt fyrir almenning að átta sig á því hvort viðhalds væri þörf.

Andri tók undir að þarna væri verk að vinna. Endurnýjun raflagna væri eitt af því sem þyrfti að halda betur utan um og algengt væri að brugðist væri við fyrst þegar bilun gerði vart við sig.

Ástandsskýrslur fasteigna gætu breytt þessu. Þar væri hægt að halda utan um aldur og endurnýjun rafkerfisins og vekja athygli á viðhaldi áður en vandamál kæmu upp.

Rafmagn og pípulagnir endurnýjuð innan 50 ára

Björn lýsti 25 og 50 ára viðmiðum sem notuð væru þegar horft væri til líftíma einstakra hluta húss.

Þegar fasteign væri orðin 50 ára ætti samkvæmt eðlilegum viðmiðum að vera búið að endurnýja rafmagn, pípulagnir innan húss og undir því, auk þaks og glugga. Ef 60 ára gamalt hús bæri engin merki þess að slíkar endurbætur hefðu farið fram væri eðlilegt að það kæmi fram í ástandsskýrslu.

Ýmsir viðhaldsþættir kæmu þó fyrr til. Tréverk sem væri mikið áveðurs, gluggar og þak gætu þurft verulegt viðhald eða endurnýjun eftir um 25 ár og ekkert væri sjálfgefið um að þak entist í hálfa öld án viðhalds.

HMS hefur þegar upplýsingar um rafmagnsvinnu

Andri sagði tiltölulega einfalt að halda utan um rafmagnshluta slíkrar skýrslu. Nánast allt sem gert væri við rafmagn væri tilkynningarskylt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og upplýsingar ættu því þegar að vera til þegar rétt hefði verið staðið að framkvæmdum.

Ef rafmagnstafla hefði verið endurnýjuð fyrir fimm árum gæti það orðið verðmæt upplýsing fyrir húseiganda sem hygðist selja. Björn benti á að slíkar upplýsingar gætu jafnframt skapað hvata til viðhalds þar sem vel við haldið húsnæði ætti að njóta þess við sölu.

Andri gagnrýndi einnig að dregið væri úr stuðningi við framkvæmdir með lægri endurgreiðslum virðisaukaskatts. Það gæti orðið til þess að fólk frestaði viðhaldi enn frekar og aukið hættu á göllum síðar.

Aldur húsa segir ekki alla söguna

Aldur húss segir þó ekki alla söguna. Björn sagði 100 ára gamalt hús geta verið í ástandi á við mun yngri fasteign ef reglulega hefði verið endurnýjað það sem slitnaði og viðhaldi sinnt.

Hús sem fengi ekkert viðhald í 100 ár væri hins vegar komið að endimörkum líftíma síns. Kerfi ástandsskýrslna ætti því ekki aðeins að benda á það sem væri orðið lélegt heldur einnig að skapa skýran hvata til að halda eignum við áður en vandamálin yrðu stór og kostnaðarsöm.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila