Annar maður handtekinn vegna hryðjuverkaárásarinnar í Stokkhólmi

Sænsk lögregluyfirvöld hafa handtekið mann í tengslum við rannsókn á hryðjuverkaárásinni í Stokkhólmi fyrr í þessum mánuði. Maðurinn sem handtekinn var er grunaður um að vera samverkamaður mannsins sem setið hefur í haldi vegna málsins en rannsókn málsins hefur eins og gefur að skilja verið afar umfangsmikil.  Ekki hafa verið gefnar upp frekari upplýsingar um þann handtekna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila