
Atriði Árbæjarskóla
Árbæjarskóli og Langholtsskóli tryggðu sér sæti í úrslitum Skrekks 2026 á öðru undanúrslitakvöldi keppninnar sem fram fór í Borgarleikhúsinu þriðjudagskvöldið 10. nóvember. Alls tóku 281 ungmenni þátt í atriðum kvöldsins en níu grunnskólar kepptu um tvö sæti í úrslitunum.
Skólarnir sem tóku þátt voru Álftamýrarskóli, Árbæjarskóli, Dalskóli, Foldaskóli, Hlíðaskóli, Landakotsskóli, Langholtsskóli, Sæmundarskóli og Vogaskóli.
Árekstur ráðlegginga og frelsi barnæskunnar
Árbæjarskóli komst áfram með atriðið Bestu ár ævi þinnar, sem fjallar um þær fjölmörgu ráðleggingar sem unglingar fá um hvernig þeir eigi að haga lífi sínu. Ráðin stangast þó oft á og getur reynst erfitt að átta sig á hvaða leið sé best að fara.

Atriði Langholtsskóla
Langholtsskóli tryggði sér einnig sæti í úrslitum með atriðinu Frelsinu fögnum. Þar er fjallað um heim barna þar sem frelsi og fjölbreytileika er fagnað, en reglur og athugasemdir fullorðinna skyggja smám saman á gleðina þar til frelsi og gleði barnæskunnar glatast.
Fjórir skólar komnir áfram í úrslit
Árbæjarskóli og Langholtsskóli bætast nú í hóp þeirra skóla sem þegar hafa tryggt sér sæti í úrslitum keppninnar.
Á fyrsta undanúrslitakvöldinu, sem fram fór mánudaginn 9. nóvember, komust Breiðholtsskóli og Klébergsskóli áfram.
Breiðholtsskóli keppti með atriðið Dulan, sem sækir innblástur í íslenskar vögguvísur og draugasögur, en Klébergsskóli komst áfram með atriðið Sveitin er geitin, sem fjallar um samskipti sveitadrengs og Reykjavíkurdrengs og líkindi lífsins í sveit og borg.
Fjórir skólar hafa því þegar tryggt sér sæti í úrslitum Skrekks 2026 en keppnin heldur áfram með fleiri undanúrslitakvöldum.
