
Atriði Breiðholtsskóla sem sjá má hér bar sigur úr býtum
Árbæjarskóli bar sigur úr býtum í Skrekk 2026, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkur, sem fór fram í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Skólinn sigraði með atriðinu Bestu ár ævi þinnar, sem fjallar um þau fjölmörgu og oft mótsagnakenndu ráð sem unglingar fá um hvernig þeir eigi að haga lífi sínu. Breiðholtsskóli varð í öðru sæti og Langholtsskóli í því þriðja.
Alls tóku 26 skólar þátt í keppninni í ár og 793 unglingar stigu á svið í undanúrslitum. Átta skólar tryggðu sér sæti á úrslitakvöldinu.
Breiðholtsskóli og Langholtsskóli í verðlaunasætum
Breiðholtsskóli hlaut annað sætið með atriðinu Dulan, sem segir frá örvæntingarfullri móður sem ber út barn sitt. Atriðið sækir innblástur í íslenskar vögguvísur og draugasögur.
Langholtsskóli varð í þriðja sæti með atriðið Frelsinu fögnum. Þar er fjallað um heim barna þar sem frelsi og fjölbreytileika er fagnað, en reglur og athugasemdir fullorðinna verða til þess að gleðin dvínar og frelsi bernskunnar glatast.
Auk verðlaunahafanna komust Dalskóli, Hlíðaskóli, Klébergsskóli, Norðlingaskóli og Sæmundarskóli í úrslit.
Norðlingaskóli hlaut Skrekkstunguna
Norðlingaskóli hlaut sérstök verðlaun fyrir skapandi notkun íslenskrar tungu í atriði sínu.
Verðlaunin nefnast Skrekkstungan og eru veitt af Bókmenntaborginni og Miðju máls og læsis. Markmið þeirra er að hvetja unglinga til að nýta íslenskuna með skapandi hætti í sviðslistum.
Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að flytjendur hafi sýnt jákvætt viðhorf til íslenskunnar og farið vel með fjölbreyttan orðaforða, rím og hrynjanda.
Dómnefndin hrósaði jafnframt því hvernig íslenskan var nýtt í tali og söng, þar sem orðaval og málnotkun einkenndust af sköpunargleði og eðlilegri framsetningu.
Unglingarnir sjá sjálfir um alla uppsetningu
Atriðin í Skrekk eru samin og útfærð af unglingunum sjálfum. Þeir sjá meðal annars um leik, dans, söng, búninga, sviðsmynd, förðun, hárgreiðslu, lýsingu og hljóð.
Viðfangsefnin voru fjölbreytt í ár og fjölluðu meðal annars um jafnrétti, kvennabaráttu, geðheilsu, líkamsímynd, fordóma, hraðtísku, menningarmun, vináttu og mikilvægi þess að fá að vera maður sjálfur.
Skrekkur er samstarfsverkefni grunnskóla og félagsmiðstöðva Reykjavíkur, skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, RÚV og Borgarleikhússins.
Hér að neðan má sjá flettimyndaröð frá atriðum kvöldsins















