Arnar Þór býður til fundar á Dalvík og Húsvík

Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi, lögmaður og fyrrverandi héraðsdómari býður almenningi til fundar á Dalvík og á Húsavík um helgina.

Arnar mun á fundunum segja meðal annars frá sinni sýn á hlutverk forseta Íslands og hvernig forseti geti eflt sjálfstæði einstaklinganna og íslenskrar þjóðar í varðstöðu um lýðræði okkar og fullveldi.

Á morgun laugardaginn 13.apríl mun Arnar Þór halda fund á Hótel Dalvík kl.11:00 en hótelið er staðsett að Skíðabraut 18 og eru allir velkomnir að kíkja í léttar veitingar og spjall.

Á sunnudag 14.apríl kl.11:00 heldur Arnar Þór fund á Fosshótel Húsavík en hótelið er staðsett að Ketilsbraut 22. Allir eru velkomnir í léttar veitingar og spjall.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila