
Arnhildur Pálmadóttir arkitekt var í dag útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2026 við hátíðlega athöfn í Höfða. Með útnefningunni er henni veitt heiðursviðurkenning fyrir framúrskarandi framlag sitt til íslenskrar byggingarlistar og fyrir að hafa markað sér sérstöðu með nýstárlegum hugmyndum um sjálfbærni og framtíð borgarskipulags. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri afhenti viðurkenninguna og sagði Arnhildi hafa verið í fararbroddi nýrrar hugsunar í arkitektúr um árabil.
Hefur vakið athygli fyrir nýja sýn á byggingarlist
Arnhildur fæddist í Reykjavík árið 1972 og lauk arkitektanámi frá Listaháskóla Íslands árið 2006. Hún stundaði síðar framhaldsnám við Institute for Advanced Architecture of Catalonia í Barcelona.
Árið 2018 stofnaði hún arkitektastofuna Sap arkitektar og hefur síðan þá unnið að verkefnum sem leggja sérstaka áherslu á sjálfbærni, nýtingu auðlinda og umhverfisvæna uppbyggingu. Í umsögn um valið segir að verk hennar sýni hvernig byggingarlist geti verið samfélagslegt afl sem hafi áhrif á lífsgæði fólks, þróun borga og framtíðarsýn samfélagsins.
Fékk hönnunarverðlaunu fyrir hönnun við Háteigsveg
Meðal þekktustu verka Arnhildar er íbúðakjarninn við Háteigsveg 59 í Reykjavík sem hlaut hönnunarverðlaun frá New European Bauhaus fyrr á þessu ári. Við hönnun hússins var lögð sérstök áhersla á að draga úr kolefnisspori byggingarinnar og þróa nýjar leiðir til sjálfbærrar mannvirkjagerðar.
Vakti alþjóðlega athygli á Feneyjatvíæringnum
Arnhildur hefur einnig vakið athygli á alþjóðavettvangi fyrir rannsóknir sínar og frumkvöðlastarf á sviði sjálfbærrar byggingarlistar.
Árið 2024 hlaut hún Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs og árið 2025 var hún sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr. Þar kynnti hún sýninguna Lavaforming, þar sem sett var fram framtíðarsýn um hvernig nýta mætti íslenskt hraun sem byggingarefni. Sýningin vakti mikla athygli og var talin áhugavert framlag til umræðu um nýsköpun og sjálfbærni í byggingariðnaði.
Viðurkenningin hvatning til áframhaldandi starfa
Við athöfnina sagðist Arnhildur þakklát fyrir viðurkenninguna og ánægð með að byggingarlist fengi aukið vægi í umræðunni. Hún sagði heiðurinn vera hvatningu til að halda áfram að ögra viðteknum hugmyndum og taka þátt í samtalinu um hvernig samfélagið geti byggt upp sjálfbærari framtíð.
Með útnefningunni bætist Arnhildur í hóp þeirra listamanna sem hlotið hafa titil borgarlistamanns Reykjavíkur fyrir framúrskarandi framlag sitt til íslensks menningar- og listalífs.
