
Á myndinni eru Andrés Magnússon frá Morgunblaðinu. Freyr Bjarnason frá MBL.is, Hallgrímur Indriðason frá RÚV og Arnþrúður Karlsdóttir og Einar Karl Gunnarsson frá Útvarpi Sögu.
Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri var í beinni útsendingu frá Höfða í morgun þar sem hún fylgdist með komu Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þegar hún stóð við húsið rifjaðist upp fyrir henni leiðtogafundurinn í Höfða fyrir 40 árum þegar Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjov mættust þar og Arnþrúður var sjálf á staðnum við fréttaflutning.
Arnþrúður var stödd við Höfða vegna heimsóknar Rubio en þaðan lá leiðin í Safnahúsið þar sem blaðamannafundur var fyrirhugaður. Hún sagði alla blaðamenn hafa þurft að fara í öryggisleit um morguninn áður en dagskráin hófst.
Þorgerður tók á móti Rubio á tröppunum
Arnþrúður lýsti því hvernig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók á móti Rubio á tröppum Höfða. Þau fóru síðan inn í húsið og Þorgerður sýndi honum Höfða. Að því loknu átti Rubio að funda með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði áður en haldið yrði yfir í Safnahúsið.
Fjöldi íslenskra og bandarískra blaðamanna var á staðnum. Arnþrúður nefndi meðal annars RÚV, Útvarp Sögu, Morgunblaðið, Vísi, Bylgjuna og Sýn. Gert var ráð fyrir að íslenskir fjölmiðlar fengju fyrst að leggja fram spurningar og að þeim hluta fundarins yrði varið um 25 mínútum.
Kom með herflugvél til Íslands fyrir 40 árum
Arnþrúður sagði það ótrúlega skrítna upplifun að vera aftur komin á nánast sama stað og þegar leiðtogafundurinn fór fram fyrir 40 árum.
„Nú er maður einhvern veginn í sömu stellingum á sömu þúfunni við Höfða,“ sagði hún þegar hún rifjaði upp fyrri heimsóknina.
Arnþrúður kom þá til Íslands með norska sjónvarpinu. Hún hafði einnig starfað fyrir RÚV í Noregi og sagði lítinn fyrirvara hafa verið á umfangsmiklum fréttaflutningi vegna fundarins.
Norska sjónvarpið útvegaði búnað og útsendingarbíla og Arnþrúður kom til landsins með herflugvél ásamt tækjum og norskum fréttamönnum.
“Er þetta sami hurðarhúnninn?”
Hún lýsti mikilli stemningu og keyrslu á fréttastofunni þegar fylgst var með því sem gerðist inni í Höfða.
Arnþrúður rifjaði meðal annars upp þegar Ingvi Hrafn fylgdist stöðugt með hurðarhúninum á Höfða í von um að eitthvað færi að gerast.
Hallgrímur Indriðason hjá RÚV hafði verið 12 ára þegar fundurinn fór fram og rifjaði þetta upp með henni í morgun. Hann spurði Arnþrúði hvort þetta væri sami hurðarhúnninn. Arnþrúður sagðist vera alveg viss um það.
