
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Guðbjörn Guðbjörnsson, stjórnsýslufræðing og óperusöngvara í síðdegisútvarpinu, um brotthvarf Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar og lýsingar hans á aðstæðum innan flokksins. Guðbjörn sagði sig hafa mun meiri áhyggjur af því sem Jón hefði sagt um ástandið innan þingflokksins en þeirri ákvörðun hans að yfirgefa hann. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Meiri áhyggjur af ástandinu en úrsögninni
Pétur spurði hvort lýsingar Jóns á veikleikum innan þingflokksins væru trúverðugar og hvort brotthvarf hans gæti veikt Viðreisn.
Guðbjörn sagðist bera mikla virðingu fyrir Jóni sem listamanni og frumkvöðli þótt hann hefði ekki alltaf verið sammála honum í stjórnmálum. Hann taldi ástæðu til að taka frásögn hans alvarlega og sagði áhyggjuefnið fyrst og fremst vera hvernig hann lýsti samskiptum og vinnubrögðum innan þingflokksins.
Hann sagði svo virðast sem lítið hefði verið hlustað á Jón og lagði áherslu á að slíkt væri ekki heilbrigt í þingflokki.
Sterk forysta á að grípa inn í
Guðbjörn gagnrýndi viðbrögð forystunnar við þeim vandamálum sem komið hafa upp. Þegar erfiðleikar skapist innan hóps þurfi sterkur formaður að grípa inn í og finna farveg sem geri fólki kleift að vinna saman.
Hann líkti þingflokki við vinnustað þar sem stjórnendur þurfi að geta tekist á við starfsmannamál. Ef stjórnendur ráði ekki við slíkar aðstæður og komi fram af hörku, óbilgirni eða dónaskap geti það veiklað forystuna.
Pétur spurði hvort þetta gæti einnig haft áhrif á ríkisstjórnina, sérstaklega þegar fleiri mál hefðu komið upp á skömmum tíma. Guðbjörn sagði slík vandamál alltaf veikja stjórnendur, þótt brotthvarf eins þingmanns eitt og sér þyrfti ekki endilega að veikja flokkinn verulega.
Klíkuskapur í litlum þingflokki
Pétur vakti sérstaklega máls á því að Jón hefði talað um klíkuskap innan Viðreisnar en ekki aðeins veikleika í stjórnun.
Guðbjörn sagði það mjög einkennilegt ef klíkur hefðu myndast í jafn litlum þingflokki. Viðreisn væri ekki með stóran þingflokk og því væri slíkt ástand enn meira áhyggjuefni. Hann lagði jafnframt áherslu á að þingflokkur ætti að vera raunverulegur vettvangur umræðu en ekki aðeins staður þar sem þegar teknar ákvarðanir væru lagðar fram til samþykktar.
Skoðanafrelsi innan þingflokks
Guðbjörn sagði sjálfstæðar skoðanir þurfa að eiga greiða leið innan stjórnmálaflokka. Þingmenn ættu ekki aðeins að þurfa að fylgja vilja þingflokksformanns eða formanns flokksins heldur ætti að vera raunverulegt svigrúm fyrir ólík sjónarmið.
Því væri ekki að undra að sjálfstætt hugsandi þingmaður eins og Jón Gnarr hefði getað lent í erfiðleikum við slíkar aðstæður. Það sem mestu máli skipti væri hvort hlustað væri á ólíkar skoðanir og mál rædd áður en ákvarðanir væru teknar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
