Ástþór ætlar að ávarpa þjóðina í kvöld

Ástþór Magnússon athafnamaður og forsetaframbjóðandi hefur boðað að hann muni í kvöld kl.20:00 flytja ávarp til þjóðarinnar.

Í tilkynningu frá Ástþóri segir að tilefni ávarpsins sé breytt staða í forsetakosningum.

„Vegna þeirra straumhvarfa og breytinga sem hafa átt sér stað í dag varðandi forsetakosningar mun ég ávarpa þjóðina í kvöld kl. 20:00 á vefnum nuna.is“ segir í tilkynningunni.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila