Ástþór afhendir forseta Íslands bréf

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi og stofnandi Friðar 2000 mun í dag afhenda Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands bréf frá Friði 2000. Þetta kemur fram í tilkynningu fra Friði 2000.

Í tilkynningunni kemur fram að í bréfinu sé farið þess á leit við forseta Íslands að embættið grípi inn í vegna sérstakra aðstæðna sem komnar séu upp í stjórnskipun Íslands. Ekki kemur fram í tilkynningunni hvers eðlis aðstæðurnar sem vísað sé til í bréfinu séu.

Fram kemur hins vegar í tilkynningunni að afhending bréfsins fari fram í dag kl.14:00 á Bessastöðum

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila