Ástþór Magnússon býður á landsleik

Ástþór Magnússon athafnamaður og frambjóðandi til forseta Íslands hefur ákveðið að bjóða landsmönnum á landsleik Íslands og Ísrael í knattspyrnu sem fram á fimmtudaginn kemur.

Í boðstilkynningu segir:

Ástþór býður í kaffi og létta drykki í Friðarsetrið, Vogaseli 1, 109 Reykjavík fimmtudaginn 21. mars kl. 19:45. Landsleikur Íslands og Ísrael í beinni. Allir velkomnir

Þá býður Ástþór landsmönnum einnig að taka þátt í léttri getraun þar sem fólki er boðið að spá fyrir um úrslitin í leiknum og í vinning er glæsilegur rafbíll frá Islandus.is. Taka má þátt í getrauninni með því að smella hér.

Einnig hefur Ástþór sent frá sér myndband í tilefni landsleiksins þar sem hann bókstaflega sparkar stríðinu á Gaza út af velli.

Sjá má myndbandið hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila