Átök á aðalfundi Skáksambands Íslands

Kristján Örn Elíasson ræddi við Björgvin Víglundsson, fyrrverandi Íslandsmeistara öldunga í skák, í þættinum Við skákborðið í dag, um aðalfund Skáksambands Íslands og þann ágreining sem þar kom upp um fundarsköp, breytingar á keppnisfyrirkomulagi og nýja gjaldtöku innan sambandsins. Í umræðunni kom fram gagnrýni á hvernig ákveðin mál voru afgreidd og hvort farið hefði verið að almennum reglum félagaréttar og fundarskipunar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Breytingar á landsliðsflokki og meistaraflokki

Á fundinum voru ræddar breytingar á skipulagi Skákþings Íslands og hvernig keppendur vinna sér rétt í landsliðsflokki. Fram kom að tillögur hefðu verið lagðar fram um að færa Íslandsmeistara kvenna, ungmenna og öldunga úr beinum rétti í landsliðsflokk yfir í sérstakan meistaraflokk sem yrði lokaður og skipaður færri keppendum.

Björgvin taldi að landsliðsflokkur ætti fyrst og fremst að byggjast á styrkleika og árangri keppenda hverju sinni. Hann lýsti efasemdum um sjálfvirkan rétt ákveðinna Íslandsmeistara til þátttöku í sterkasta flokki landsins og sagði mikilvægt að fyrirkomulagið væri skýrt og sanngjarnt gagnvart öllum keppendum.

Deilt um félagsgjöld einstaklinga

Mesta deilan á fundinum, sneri þó að nýrri gjaldtöku, þar sem rætt var um að innheimta félagsgjöld beint af einstaklingum í skákfélögum landsins. Björgvin gagnrýndi þá hugmynd harðlega og taldi að Skáksamband Íslands ætti að eiga viðskipti við aðildarfélög sín en ekki einstaka félagsmenn.

Hann hélt því fram að lagastoð skorti fyrir þeirri framkvæmd sem rædd var og slíkt gæti skapað ágreining um stöðu félagsmanna gagnvart sambandinu. Þá kom einnig fram gagnrýni á að einstaklingar gætu fengið greiðslukröfur sendar í heimabanka vegna gjalda sem þeir hefðu ekki samþykkt með beinum hætti.

Gagnrýni á fundarstjórn og möguleg dómsmál í uppsiglingu

Björgvin gagnrýndi einnig fundarstjórn aðalfundarins og taldi að mál hefði verið tekið aftur upp eftir að það hafði þegar verið fellt í atkvæðagreiðslu. Að hans mati stangaðist það á við almennar reglur fundarskapa og jafnræði félagsmanna.

Í umræðunni kom fram að sumir fundargestir hefðu rætt möguleikann á að láta reyna á lögmæti ákvarðana fundarins fyrir dómstólum. Björgvin sagði mikilvægt að fundarstjórar slíkra funda væru óháðir og gættu þess að farið væri að reglum þar sem Skáksamband Íslands starfaði meðal annars fyrir opinbert fé og gegndi mikilvægu hlutverki innan íslensks íþróttalífs.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila