Atvinnurekendur á Höfða hraktir á brott með fyrirtækin

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum í síðdegisútvarpinu um stöðu atvinnurekenda á Ártúnshöfða og áhrif fyrirhugaðra framkvæmda við Suðurlandsbraut. Hildur sagði fjölmörg fyrirtæki á Ártúnshöfða standa frammi fyrir því að fasteignir þeirra væru orðnar verðlausar vegna útrunninna lóðarleigusamninga án uppkaupsákvæða. Hún sagði jafnframt að skipulag Borgarlínu við Suðurlandsbraut gæti haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði fyrirtækja á svæðinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Fyrirtæki gætu þurft að rífa húsnæði á eigin kostnað

Hildur sagði málið hafa komið upp þegar atvinnurekandi á Ártúnshöfða fékk þær upplýsingar við sölu fasteignar að eignin væri í reynd verðlaus þar sem lóðarleigusamningur væri útrunninn og án uppkaupsákvæðis. Samkvæmt skilmálunum þyrfti eigandinn að rífa húsnæðið á eigin kostnað og fengi engar bætur frá Reykjavíkurborg. Í kjölfarið hafi fleiri atvinnurekendur farið yfir sína samninga og þá komið í ljós að stór hópur fyrirtækja væri í sömu stöðu. Hildur kallaði eftir heildarkortlagningu á lóðasamningum á Ártúnshöfða og sagði niðurstöðurnar hafa sýnt að fasteignamat þeirra eigna sem stæðu á útrunnum samningum án uppkaupsákvæða næmi um 20 milljörðum króna.

Hún sagði óvissuna hafa lamað fjárfestingu og viðhald á svæðinu þar sem eigendur treystu sér ekki til að ráðast í framkvæmdir án þess að vita hvort þeir þyrftu síðar að yfirgefa lóðirnar og rífa húsnæðið sjálfir.

Gagnrýnir þéttingarstefnu borgarinnar Ártúnshöfði núna og Skeifan næst

Í viðtalinu sagði Hildur að Reykjavíkurborg hefði um langt skeið unnið að því að breyta Ártúnshöfða úr atvinnusvæði fyrir Borgarlínu og íbúðabyggð. Hún sagði sömu þróun hafa sést í Vogabyggð og fyrirhugað væri að halda áfram í Skeifunni. Hildur sagði borgina ekki hafa tryggt fyrirtækjum aðra kosti innan Reykjavíkur og gagnrýndi að atvinnusvæði væru tekin undir Borgarlínu og íbúðauppbyggingu án þess að hugað væri að framtíð starfseminnar. Hún nefndi einnig áhyggjur sínar af umræðu um mögulega íbúðabyggð við Sundahöfn og sagði þar vera mikilvægustu inn- og útflutningshöfn landsins.

2400 störf við Suðurlandsbraut í uppnámi

Hildur gagnrýndi jafnframt fyrirhugaðar framkvæmdir vegna Borgarlínu við Suðurlandsbraut. Hún sagði áformin fela í sér að akreinar yrðu teknar undir almenningssamgöngur, bílastæðum fækkað um 40% og aðgengi að fyrirtækjum skert. Samkvæmt Hildi starfa um 2400 manns við Suðurlandsbraut þar sem meðal annars eru læknastofur, skurðstofur, apótek, endurskoðunarfyrirtæki og sérverslanir. Hún sagði atvinnurekendur hafi gagnrýnt að breytingarnar væru unnar án samráðs og þær gætu veikt samkeppnisstöðu fyrirtækjanna gagnvart verslunarkjörnum á borð við Smáralind og Kringluna.

Hildur sagði Sjálfstæðisflokkinn ætli að stöðva þær þrengingar sem fyrirhugaðar væru við Suðurlandsbraut ef flokkurinn kæmist til valda í borginni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila