Atvinnuuppbygging á Suðurnesjum tengd gagnaverum, NATO og Helguvík

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Vilhjálm Árnason, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og þingmann flokksins í Suðurkjördæmi, í síðdegisútvarpinu um stöðu atvinnulífs á Suðurnesjum, hátt atvinnuleysi og umfangsmikla uppbyggingu sem nú stendur yfir í tengslum við gagnaver, Keflavíkurflugvöll, NATO og atvinnusvæði í Helguvík. Þar kom fram að Vilhjálmur telur Reykjanesbæ standa frammi fyrir stórum vaxtatækifærum þrátt fyrir samdrátt í íslensku efnahagslífi og erfiða stöðu á húsnæðismarkaði. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Atvinnuleysi enn mikið á Suðurnesjum – 10% það hæsta á Suðrnesjum

Vilhjálmur sagði atvinnuleysi í Reykjanesbæ vera um tíu prósent og það hæsta á landinu. Hann sagði sérstaklega áhyggjuefni hversu erfitt ungt fólk ætti með að fá vinnu, meðal annars framhaldsskólanemar og ungmenni sem leituðu sér sumarstarfa. Að hans mati ætti sveitarfélagið sjálft að skapa fleiri störf fyrir ungmenni með verkefnum tengdum viðhaldi, fegrun bæjarins og samfélagsverkefnum.

Hann sagði að þrátt fyrir samdrátt í byggingariðnaði og hægari íbúðauppbyggingu héldi atvinnulífið á Suðurnesjum betur velli en víða annars staðar vegna stórra framkvæmda á svæðinu.

Gagnaver og orkuframkvæmdir skapa sérhæfð störf

Í viðtalinu sagði Vilhjálmur að gagnaver væru orðin ein stærsta atvinnuuppbyggingin á Suðurnesjum. Hann sagði HS Orku og Landsvirkjun, leggja aukna áherslu á slíka starfsemi þar sem hún skapaði sérhæfð og betur launuð störf fyrir tæknimenntað starfsfólk. Hann sagði að mikil vinna hefði skapast í kringum gagnaverin fyrir rafvirkja, vélfræðinga, verktaka og tæknifyrirtæki og að framhaldsskólar á svæðinu væru þegar farnir að ræða sérhæfðar námsleiðir tengdar rekstri gagnavera.

Vilhjálmur nefndi einnig að verið væri að byggja nýja aðveitustöð fyrir raforku vegna stækkunar gagnavera og að hundruð starfsmanna gætu komið að þeirri uppbyggingu á næstu árum.

NATO, Helguvík og ferðaþjónusta í vexti

Vilhjálmur sagði jafnframt mikla uppbyggingu standa yfir á varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll þar sem NATO væri að reisa vöruskemmur, gistiaðstöðu og aðra innviði. Þannig gæti að mati Vilhjálms gæti Helguvík orðið eitt mikilvægasta atvinnusvæði landsins með stórskipahöfn, útflutningsaðstöðu og tengingu við alþjóðaflugvöllinn í Keflavík.

Í viðtalinu kom fram að fleiri skemmtiferðaskip væru farin að koma til Keflavíkurhafnar og að Reykjanesbær þyrfti að undirbúa betur móttöku ferðamanna til að styrkja verslun, þjónustu og mannlíf í bænum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila