Auka framboð háskólanáms fyrir fólk með þroskahömlun

Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Listaháskóli Íslands hafa tekið höndum saman til að vinna að þróun, uppbyggingu og samvinnu milli skólanna um inngildandi nám á háskólastigi fyrir fólk með þroskahömlun. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað samning tengdan verkefninu sem felur í sér 16,5 m.kr. fjárstuðning til ráðningar verkefnastjóra sem leiða verkefnið, hafa starfsskyldu í öllum háskólunum og tryggja þannig samstarf og aðkomu allra skólanna að verkefninu. Samhliða þessu fer ráðuneytið yfir löggjöf, reglugerðir og fjármögnun námsins með það að markmiði að styðja við uppbyggingu þess.

,,Það er mjög ánægjulegt að skólarnir taki sig saman til að stuðla að fjölbreyttara námi fyrir fatlað fólk og auknu aðgengi þess hóps að háskólanámi. Það er mikilvægt að auka aðgengi þessa hóps að slíku námi á landsbyggðinni og að fjölbreyttara námi en nú er í boði,“ segir Áslaug Arna. 

Fleiri eigi kost á háskólanámi

Í tilkynningu segir að í verkefninu verður það hlutverk HÍ að miðla þekkingu til hinna skólanna og stuðla að frekari þróun innan skólans svo námið nái inn á önnur fræðasvið. Þá mun HA koma á fót sambærilegu námi og LHÍ mun skoða möguleika skólans á því að bjóða einnig upp á slíkt nám. Skólarnir þrír eru í dag á mismunandi stað hvað varðar inngildandi nám fyrir fólk með þroskahömlun en með samvinnu er unnt að styrkja stoðir námsins, auka gæði þess og fjölbreytileika og tryggja að fleira fólk með þroskahömlun eigi kost á háskólanámi hér á landi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila