
Lögreglan á Suðurnesjum og aðrir viðbragðsaðilar verða með aukinn viðbúnað á Reykjanesi miðvikudaginn 12. ágúst vegna almyrkvans á sólu. Búist er við miklum fjölda fólks á svæðinu og verulegu umferðarálagi. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar munu aðstoða lögreglu við þau verkefni sem upp kunna að koma. Brunavarnir Suðurnesja, Slökkvilið Grindavíkur og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verða einnig með aukinn viðbúnað. Aðgerðastjórn verður virkjuð í Reykjanesbæ og 3 vettvangsstjórnir starfræktar á svæðinu.
Ekki nauðsynlegt að ferðast langt
Lögregla minnir íbúa Reykjaness á að almyrkvinn sjáist vel frá heimilum í þéttbýli og því sé ekki nauðsynlegt að ferðast langt til að fylgjast með honum.
Sveitarfélög á svæðinu hafa einnig komið upp sérstökum safnstöðum þar sem fólk getur komið saman. Fólk er hvatt til að ganga eða hjóla á slíka staði innan þéttbýlis þegar aðstæður leyfa til að draga úr umferðarálagi.
Búist við miklum töfum
Þeir sem ætla að ferðast um Reykjanes eru hvattir til að fara snemma af stað og gera ráð fyrir að ferðin taki mun lengri tíma en venjulega. Lögregla bendir einnig á að umferðarþungi geti haldist mikill eftir að almyrkvanum lýkur.
Fólk er hvatt til að hafa með sér mat og drykk og nægilegt magn nauðsynlegra lyfja ef tafir verða langar.
Farþegar sem eiga flug frá Keflavíkurflugvelli eru sérstaklega hvattir til að leggja tímanlega af stað vegna mögulegra tafa á leiðinni.
Einstefnur og vegalokanir
Sérstakar umferðartakmarkanir verða teknar upp vegna almyrkvans. Einstefna verður á Garðskagavegi/Stafnesvegi frá Nesvegi/Hafnarvegi til norðurs í átt að Sandgerði.
Einstefna verður einnig á Vatnsleysustrandarvegi frá Vogum til austurs í átt að Kúagerði. Bláalónsvegur og Höskuldarvallarvegur verða lokaðir fyrir umferð.
Á Skagabraut verður einstefna að Garðskagavita og umferð þaðan beint til baka um Útgarðsveg að golfskálanum í Sandgerði.
Bílar á vegöxlum verða fjarlægðir
Lögregla tekur sérstaklega fram að óheimilt sé að leggja ökutækjum á vegum eða vegöxlum. Ökutæki sem hindra umferð eða skapa hættu verða fjarlægð á kostnað eigenda.
Ökumenn eru beðnir um að virða lokanir, merkingar og fyrirmæli viðbragðsaðila og leggja eingöngu á skilgreindum bílastæðum.
Farsímakerfið gæti orðið fyrir miklu álagi
Lögregla varar einnig við því að GSM-farsímakerfið geti orðið fyrir miklu álagi, sérstaklega utan þéttbýlis þar sem mikill fjöldi fólks safnast saman. Því gæti reynst erfitt að ná símasambandi á ákveðnum stöðum.
Neyðarnúmerið er 112 en ef ekki næst samband við 112 bendir lögregla á varanúmer Neyðarlínunnar, 599 0112.
Sólmyrkvagleraugu nauðsynleg
Þeir sem ætla að horfa beint til sólar eru minntir á að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu fyrir og eftir almyrkvann. Venjuleg sólgleraugu veita ekki þá vörn sem nauðsynleg er.
Lögregla hvetur fólk til að skipuleggja daginn vel, fara tímanlega af stað og fylgja fyrirmælum viðbragðsaðila svo hægt verði að njóta þessa sjaldgæfa viðburðar með öruggum hætti.
