Bæjarfulltrúar Kópavogs vissu ekki af samningi við Samtökin ’78

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Einar Jóhannes Guðnason, oddvita Miðflokksins í Kópavogi í síðdegisútvarpinu í dag um þjónustusamning Kópavogsbæjar við Samtökin ’78 og kynfræðsluefni í grunnskólum bæjarins. Einar sagði samninginn hafa verið gerðan án þess að kjörnir fulltrúar hefðu fengið málið til efnislegrar umræðu og gagnrýndi jafnframt að embættismenn hefðu skuldbundið bæinn til margra ára, án samþykkis bæjarstjórnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Samningurinn kom bæjarfulltrúum á óvart

Einar sagði að Samtökin ’78 hefðu fyrr á árinu greint frá þjónustusamningi við Kópavogsbæ, um fræðslu fyrir grunnskóla, leikskóla, frístundastarf og íþróttafélög. Hann sagði að í kjölfar þess hafi hann óskað eftir að fá samninginn afhentan frá bænum þar sem hann hefði aldrei séð hann tekinn fyrir í fundargerðum eða pólitískri umræðu. Samkvæmt samningnum greiðir Kópavogsbær 5,5 milljónir króna á ári í 3 ár fyrir fræðslu um hinsegin málefni til starfsfólks og nemenda. Einar sagði marga bæjarfulltrúa ekki hafa vitað af samningnum og taldi málið varpa ljósi á alvarlega annmarka í stjórnsýslu bæjarins.

Hann sagði sérstaklega alvarlegt að bæjarstjórn hefði áður hafnað því að gera slíkan samning en embættismenn hefðu engu að síður ákveðið að undirrita hann.

Gagnrýnir að utanaðkomandi aðilar komi inn í skóla

Í viðtalinu sagði Einar að Miðflokkurinn teldu að kennsla og fræðsla í grunnskólum ætti fyrst og fremst að vera í höndum kennara og skólayfirvalda en ekki utanaðkomandi samtaka eða hagsmunahópa. Að hans mati væri meginmálið ekki eingöngu efni fræðslunnar heldur sú stefna að fela 3ja aðila kennsluverkefni inni í grunnskólum án skýrrar pólitískrar stefnumörkunar.

Gagnrýnir efni úr „Viku 6“

Einar gagnrýndi einnig kynfræðsluefni úr verkefninu „Vika 6“ sem hann sagði hafa verið sýnilegt í grunnskólum Kópavogs. Hann nefndi meðal annars verkefni og veggspjöld sem foreldrar hefðu birt myndir af á samfélagsmiðlum og talið óviðeigandi fyrir börn. Efnið hafi hins vegar verið tekið út af samfélagmiðlum þar sem það þótti sýna óviðeigandi efni. Hann sagði mikilvægt að börn fengju fræðslu um mörk, öryggi og samskipti en taldi að ákveðnir þættir kynfræðslunnar hefðu gengið lengra en margir foreldrar sættu sig við.

Leggja ætti meiri áherslu á íslenska menningu og hefðir

Einar sagði Miðflokkinn vilja leggja meiri áherslu á íslenska sögu, menningu og hefðir í grunnskólum Kópavogs. Hann sagði börn þurfa sterkari tengingu við íslenskt samfélag og skólarnir ættu að leggja meiri rækt við íslensk gildi og menningararf.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila