Bæta þarf aðbúnað í skólum og fjölga hjúkrunarrýmum í Reykjanesbæ

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Vilhjálm Árnason, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og þingmann flokksins í síðdegisútvarpinu um skólamál, þjónustu við eldri borgara og stöðu hjúkrunarrýma í Reykjanesbæ. Þar kom fram að Vilhjálmur telur faglegt starf í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins almennt sterkt en bæta þurfi húsnæði, aðbúnað og viðhald víða í skólakerfinu samhliða aukinni uppbyggingu í þjónustu við eldri borgara. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Aðbúnaður skóla víða orðinn úreltur

Vilhjálmur sagði að leikskólar og grunnskólar í Reykjanesbæ hefðu lengi verið þekktir fyrir gott faglegt starf en víða væri þörf á endurbótum á húsnæði og vinnuaðstöðu starfsfólks og nemenda. Í viðtalinu nefndi hann sérstaklega Stafnsnesleikskóla þar sem húsnæði og aðstaða væru að hans mati komin til ára sinna þrátt fyrir öflugt starf starfsfólks. Hann sagði að slæmur aðbúnaður gæti haft áhrif á möguleika skóla til að halda í fagfólk og laða að nýja starfsmenn.

Vilhjálmur sagði einnig að viðhaldsskuld hefði safnast upp í fasteignum sveitarfélagsins á undanförnum árum. Hann rakti það meðal annars til þess, þegar Reykjanesbær keypti aftur fasteignir sem áður höfðu verið seldar á tímum fjárhagserfiðleika sveitarfélagsins. Að hans mati þyrfti sveitarfélagið nú að ráðast í markvissar endurbætur á skólahúsnæði og bæta tæknibúnað og umhverfi nemenda.

Vill efla íslenskukennslu fyrir innflytjendur

Í viðtalinu sagði Vilhjálmur einnig mikilvægt að styrkja íslenskukennslu fyrir innflytjendur og auðvelda fólki að læra tungumálið samhliða vinnu. Hann nefndi dæmi af vinnustöðum þar sem starfsfólki væri gefinn tími innan vinnudags til að sækja íslenskunám og sagði mikilvægt að sveitarfélagið og atvinnulífið ynnu saman að aukinni aðlögun fólks að íslensku samfélagi. Að hans mati væri tungumálakunnátta lykilatriði til að styrkja samfélagsþátttöku og bæta samskipti innan sveitarfélagsins.

Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum enn til staðar

Vilhjálmur sagði að þrátt fyrir opnun nýrra hjúkrunarrýma í Reykjanesbæ væru enn um 40 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunarplássi. Hann sagði fyrirhugað að reisa nýtt hjúkrunarheimili á Ásbrú með um 90 rýmum og beðið væri eftir formlegum samningum svo hægt yrði að hefja framkvæmdir. Í viðtalinu lagði hann jafnframt áherslu á að efla heimaþjónustu og gera eldri borgurum kleift að búa lengur heima með auknum stuðningi. Þar nefndi hann meðal annars göngustíga, lýsingu, bekki og bætta aðstöðu til útivistar sem mikilvægan hluta af þjónustu við eldri íbúa sveitarfélagsins.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila