Bæta þarf þjónustu og aðgengi fyrir eldri borgara í Reykjavík

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum í síðdegisútvarpinu um málefni eldri borgara, aðgengismál og þjónustu í Reykjavík. Hildur sagði Reykjavíkurborg þurfa að bregðast við ört stækkandi hópi eldri borgara með aukinni uppbyggingu húsnæðis, betri heimaþjónustu, auknu aðgengi og breytingum á gjaldskrám og þjónustu borgarinnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vill fjölga lífsgæðakjörnum og efla heimaþjónustu

Hildur sagði málefni eldri borgara hafa verið áberandi í samtölum hennar við íbúa borgarinnar á síðustu vikum. Hún nefndi meðal annars fund með Félagi eldri borgara í Reykjavík þar sem húsnæðismál, heimaþjónusta og aðgengi hefðu verið meðal helstu umræðuefna. Samkvæmt Hildi þarf Reykjavíkurborg að leggja meiri áherslu á að fólk geti búið heima hjá sér eins lengi og mögulegt er. Til þess þurfi að efla heimahjúkrun og heimaþjónustu samhliða fjölgun eldri borgara í borginni.

Hún sagði einnig mikilvægt að fjölga svokölluðum lífsgæðakjörnum þar sem eldri borgarar geti búið í sérhæfðu húsnæði með aðgengi að félagsstarfi og þjónustu í nærumhverfinu. Hildur nefndi sérstaklega uppbyggingu Samtaka aldraðra sem dæmi um verkefni sem hefði reynst vel.

Frístundakort fyrir eldri borgara og breytingar á fasteignasköttum

Í viðtalinu gagnrýndi Hildur hækkandi fasteignaskatta í Reykjavík og sagði eldri borgara finna sérstaklega fyrir hækkunum fasteignamats. Hún sagði Sjálfstæðisflokkinn vilja hækka tekjuviðmið afslátta af fasteignasköttum þannig að fleiri eldri borgarar gætu notið lægri gjalda. Hildur kynnti jafnframt hugmynd um sérstakt frístundakort fyrir eldri borgara að fjárhæð sex til tíu þúsund krónur á ári. Kortið mætti nýta til sundferða, líkamsræktar eða annars skipulagðs félags- og heilsueflingarstarfs.

Hún sagði einnig að margir eldri borgarar hefðu verið ósáttir við að ekki væri lengur frítt í sund fyrir eldri íbúa Reykjavíkur.

Fjölga þarf bekkjum og upphituðum göngustígum

Þá sagði Hildur aðgengismál oft snúast um einfaldar en mikilvægar framkvæmdir í nærumhverfi fólks. Hún nefndi sérstaklega hálkuvarnir, göngustíga og bekki. Hún segir að margir eldri borgarar hafi bent á að skortur sé á bekkjum á gönguleiðum í borginni þar sem fólk geti sest niður og hvílt sig. Hún sagði einnig mikilvægt að göngustígar væru betur hreinsaðir yfir veturinn og að víðar yrði ráðist í upphitun stíga.

Hildur sagði mögulegt að nýta affallsvatn frá húsnæði til að hita gönguleiðir og bæta þannig öryggi og aðgengi á snjóþungum og hálum dögum. Hún nefndi sem dæmi nýrri uppbyggingarsvæði þar sem slíkar lausnir hefðu þegar verið teknar upp.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila