Bandaríkin eina ríkið sem getur varið Ísland eins og staðan er núna

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Njál Trausta Friðbertsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins og varaformann Íslandsdeildar NATO-þingsins, í síðdegisútvarpinu í dag, um varnir Íslands og stöðu Bandaríkjanna á Norður-Atlantshafi. Njáll telur Bandaríkin eina ríkið sem hafi getu til að verja Ísland með fullnægjandi hætti eins og staðan er núna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Geta Bandaríkjanna allt önnur en Evrópuríkja

Arnþrúður spurði Njál hvort staðan væri í raun sú að Bandaríkin væru eina ríkið sem gæti varið Ísland.

„Ég tel svo vera,“ svaraði Njáll.

Hann sagði Evrópuríkin vissulega vera að byggja upp eigin varnir en það myndi taka þau mjög langan tíma að ná þeirri getu sem Bandaríkin hafa á Norður-Atlantshafi.

Kafbátavarnir skipta þar sérstaklega miklu máli. Njáll benti á að Bandaríkin hefðu yfir að ráða langmestu getu NATO-ríkja á því sviði og nefndi áður í viðtalinu umfangsmikinn flota P-8 kafbátaleitarvéla þeirra.

Ísland hluti af ystu vörnum Bandaríkjanna

Njáll sagði varnir Íslands og Bandaríkjanna að þessu leyti byggjast á sameiginlegum hagsmunum.

Ísland væri hluti af ystu vörnum Bandaríkjanna vegna landfræðilegrar stöðu landsins og þeirrar umferðar sem fer um Norður-Atlantshafið. Kafbátavarnir á hafsvæðinu í kringum Ísland skipti Bandaríkin gríðarlega miklu máli.

Njáll sagði bandaríska þingmenn og öldungadeildarþingmenn sem hann hefði rætt við í gegnum árin vera mjög meðvitaða um mikilvægi Íslands fyrir varnir Bandaríkjanna.

Kafbátarnir fara um GIUK-hliðið

Mikilvægi Íslands tengist ekki síst GIUK-hliðinu milli Grænlands, Íslands og Bretlands.

Njáll sagði kjarnorkukafbáta geta siglt frá Kólaskaga og Múrmansk út á Atlantshafið og farið um hafsvæðið í nágrenni Íslands. Þar skapist mikilvægt tækifæri til að fylgjast með ferðum þeirra áður en þeir komast lengra út á Atlantshafið.

Þetta skýri hvers vegna Bandaríkin leggi svo mikla áherslu á kafbátavarnir á svæðinu og hvers vegna landfræðileg staða Íslands hafi áfram mikið hernaðarlegt vægi.

Evrópuríkin langt frá sömu getu

Njáll sagði gott samstarf Íslands við Evrópuríki áfram mikilvægt og benti meðal annars á samstarfið innan NATO og JEF.

Það breyti þó ekki því að geta Bandaríkjanna sé enn í allt öðrum flokki þegar kemur að vörnum Norður-Atlantshafsins.

Evrópuríkin gætu aukið eigin getu á næstu árum en Njáll sagði langan tíma munu líða þar til þau gætu nálgast þá getu sem Bandaríkin hafa nú þegar, sérstaklega í kafbátavörnum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila