Barnamenningarhátíð sett í morgun

Barnamenningarhátíð 2026 var sett í Eldborgarsal Hörpu í morgun þar sem öllum 4. bekkingum í Reykjavík var boðið á opnunarviðburðinn. Vegna fjölda fór setningin fram tvisvar, klukkan 9:45 og aftur klukkan 12:15.

VÆB fluttu lag hátíðarinnar

Á setningunni var boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði, meðal annars söng, dans og sirkus. Dúettinn VÆB flutti lag hátíðarinnar „Sama hver það er“, en hann skipa bræðurnir Matthías Davíð Matthíasson og Hálfdán Helgi Matthíasson.

Textinn byggður á svörum barna

Þema Barnamenningarhátíðar í ár er samkennd og samfélag. Nemendur í 4. bekk í borginni svöruðu spurningum um hvað felist í þeim hugtökum og er texti lagsins byggður á svörum þeirra.

Viðburðir víða um borgina fram eftir viku

Barnamenningarhátíð stendur yfir dagana 20.–26. apríl og taka hátt í 10.000 börn þátt með einum eða öðrum hætti. Viðburðir fara fram víða um borgina, meðal annars í grunnskólum, leikskólum, frístundamiðstöðvum, menningarstofnunum og listaskólum.

Öllum stendur til boða að sækja viðburði hátíðarinnar án endurgjalds.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila