
Sýningin Bátar og býli verður opnuð í Sjóminjasafninu á Eyrarbakka 19. júní klukkan 18. Á sýningunni gefur að líta fjölbreytt úrval vandaðra líkana af bátum, skipum og byggingum úr Árnessýslu. Meðal gripa á sýningunni eru 3 skipslíkön eftir skipasmiðinn Stein Guðmundsson í Steinsbæ á Eyrarbakka, líkan af bátnum Von frá Þorlákshöfn eftir Vilhjálm Hinrik Ívarsson og fleiri bátar smíðaðir af hagleiksmönnum úr héraðinu.
Líkön af sögufrægum byggingum
Á sýningunni eru einnig fjölmörg húsalíkön. Þar ber hæst stórt líkan af Stöng í Þjórsárdal eftir listamanninn Magnús Pálsson. Einnig má sjá líkan af Áslækjarrjómabúi í Hrunamannahreppi eftir Ingimund Einarsson og líkan af Birtingaholti sem Sigurfinnur Sigurðsson smíðaði löngu eftir að bærinn brann árið 1951.
Sýningarhaldarar segja sýninguna veita innsýn í heim módelsmíða þar sem handverk og nákvæmni smiða endurskapi mannvirki og farartæki í smækkaðri mynd.
Hluti af starfsemi Byggðasafns Árnesinga
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka er eitt af sýningarhúsum Byggðasafns Árnesinga. Auk þess rekur safnið meðal annars Húsið á Eyrarbakka, Kirkjubæ, Eggjaskúrinn, Rjómabúið á Baugsstöðum og Þuríðarbúð.
Safnið er opið alla daga yfir sumartímann. Sýningin Bátar og býli verður opin gestum frá opnunardegi og fram eftir sumri.
