Bein útsending frá blaðamannafundi Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Íslands verða á blaðamannafundi utanríkisráðuneytisins í Safnahúsinu í Reykjavík í dag í tilefni af opinberri heimsókn Rubio til Íslands.

Blaðamannafundurinn hefst klukkan 10:25 og er gert ráð fyrir að hann standi í um 25 mínútur.

Arnþrúður Karlsdóttir og Einar Karl Gunnarsson verða á fundinum fyrir hönd Útvarps Sögu og mun miðillinn flytja hlustendum og lesendum fréttir af því sem þar kemur fram.

Rubio kom til Íslands á mánudag og fundar með íslenskum ráðamönnum meðan á heimsókn hans stendur.

Útvarp Saga sýnir beint frá blaðamannafundinum og má fylgjast með útsendingunni hér fyrir neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila