
Stofnfundur Áfram Íslands hefst klukkan 17:00 í dag og verður sýndur í beinu streymi hér á síðunni.
Á fundinum taka til máls Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, Björn Zoëga læknir og Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti. Fundarstjóri verður Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur.
Áfram Ísland er vettvangur fólks sem styður áframhaldandi sjálfstæða stöðu Íslands utan Evrópusambandsins í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér að neðan um leið og hann hefst.
